Prentað þann 8. apríl 2025
152/2017
Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1703 að því er varðar alþjóðlega reikningsskilastaðla, IFRS-staðla 10 og 12 og IAS-staðal 28.
1. gr.
Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til í lið 10ba í XXII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 253/2016, frá 2. desember 2016, um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XXII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1703 frá 22. september 2016 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1126/2008 um innleiðingu tiltekinna alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar alþjóðlega reikningsskilastaðla, IFRS-staðla 10 og 12, og alþjóðlegan reikningsskilastaðal, IAS-staðal 28.
2. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1703 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 10/2017, 16. febrúar 2017, bls. 270.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 127. gr. laga nr. 3/2006, um ársreikninga, skal gilda fyrir félög sem skylt er að eða nýta sér heimild til að semja ársreikninga sína og samstæðureikninga í samræmi við innleidda alþjóðlega reikningsskilastaðla, öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 17. febrúar 2017.
F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,
Sigrún Brynja Einarsdóttir.
Harpa Theodórsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.