Prentað þann 15. apríl 2025
150/2020
Reglugerð um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um skilgreiningu, lýsingu og kynningu á tilteknum áfengum drykkjum (VII).
1. gr. Gildissvið.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XXVII. kafla II. viðauka samningsins (brenndir drykkir), gilda hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans.
Innflutningur og markaðssetning á brenndum drykkjum er heimil eftir því sem tilgreint er í XXVII. kafla II. viðauka samningsins.
2. gr. Innleiðing reglugerða.
Eftirtaldar reglugerðir Evrópusambandsins um skilgreiningu, lýsingu, kynningu, merkingu, og vernd landfræðilegra merkinga á áfengum drykkjum skulu gilda á Íslandi með þeirri aðlögun sem fram kemur í viðkomandi ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar:
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1067 frá 1. júlí 2016 (sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 5/2020, 30. janúar 2020, bls. 347) um breytingu á III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 110/2008 um skilgreiningu, lýsingu, kynningu, merkingu og vernd landfræðilegra merkinga á brenndum drykkjum, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 299/2019, frá 13. desember 2019, um breytingu á II. viðauka við EES-samninginn um tæknilegar reglugerðir, staðla, prófanir og vottun.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1098 frá 2. ágúst 2018 (sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 5/2020, 30. janúar 2020, bls. 363) um breytingu og leiðréttingu á III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 110/2008 um skilgreiningu, lýsingu, kynningu, merkingu og vernd landfræðilegra merkinga á brenndum drykkjum, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 299/2019, frá 13. desember 2019, um breytingu á II. viðauka við EES-samninginn um tæknilegar reglugerðir, staðla, prófanir og vottun.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1850 frá 21. nóvember 2018 (sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 5/2020, 30. janúar 2020, bls. 375) um skráningu landfræðilegrar merkingar fyrir brenndan drykk í III. viðauka við reglugerð (EB) nr. 110/2008 ("Гроздова ракия от Търговище/Grozdova rakya ot Targovishte" (GI)), sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 300/2019, frá 13. desember 2019, um breytingu á II. viðauka við EES-samninginn um tæknilegar reglugerðir, staðla, prófanir og vottun.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1871 frá 23. nóvember 2018 (sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 5/2020, 30. janúar 2020, bls. 379) um skráningu landfræðilegrar merkingar fyrir brenndan drykk í III. viðauka við reglugerð (EB) nr. 110/2008 ("Карнобатска гроздова ракия"/"Гроздова ракия от Карнобат"/"Karnobatska grozdova rakya"/"Grozdova rakya ot Karnobat" (GI)), sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 300/2019, frá 13. desember 2019, um breytingu á II. viðauka við EES-samninginn um tæknilegar reglugerðir, staðla, prófanir og vottun.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/335 frá 27. febrúar 2019 (sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 5/2020, 30. janúar 2020, bls. 367) um breytingu á III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 110/2008 að því er varðar að skrá brennda drykkinn "Tequila" sem landfræðilega merkingu, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 299/2019, frá 13. desember 2019, um breytingu á II. viðauka við EES‑-samninginn um tæknilegar reglugerðir, staðla, prófanir og vottun.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/674 frá 29. apríl 2019 (sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 5/2020, 30. janúar 2020, bls. 372) um breytingu á III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 110/2008 um skilgreiningu, lýsingu, kynningu, merkingu og vernd landfræðilegra merkinga á brenndum drykkjum, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 299/2019, frá 13. desember 2019, um breytingu á II. viðauka við EES-samninginn um tæknilegar reglugerðir, staðla, prófanir og vottun.
3. gr. Gildistaka og lagastoð.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 193. gr. tollalaga nr. 88/2005, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 12. febrúar 2020.
F. h. r.
Helga Jónsdóttir.
Steinar Örn Steinarsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.