Félags- og vinnumarkaðsráðuneyti

1490/2024

Reglugerð um fjárhæðir greiðslna fyrir árið 2025 samkvæmt lögum um réttindi lifandi líffæragjafa til tímabundinnar fjárhagsaðstoðar.

1. gr.

Fjárhæðir greiðslna samkvæmt lögum um réttindi lifandi líffæragjafa til tímabundinnar fjárhags­aðstoðar, nr. 40/2009. skulu vera sem hér segir fyrir árið 2025:

  1. Hámarksfjárhæð tekjutengdra greiðslna skv. 1. málsl. 3. mgr. 10. gr. skal nema 1.007.951 kr. á mánuði.
  2. Lágmarksfjárhæð tekjutengdra greiðslna skv. 2. málsl. 3. mgr. 10. gr. skal nema 261.539 kr. á mánuði.
  3. Fjárhæð greiðslna til líffæragjafa í námi skv. 1. mgr. 15. gr. skal nema 261.539 kr. á mánuði.

 

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 18. gr., sbr. 8. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 15. gr., laga um réttindi lifandi líffæragjafa til tímabundinnar fjárhagsaðstoðar, nr. 40/2009, öðlast gildi 1. janúar 2025. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1413/2023, um fjárhæðir greiðslna fyrir árið 2024 samkvæmt lögum um réttindi lifandi líffæragjafa til tímabundinnar fjárhagsaðstoðar.

 

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, 27. nóvember 2024.

 

Bjarni Benediktsson.

Jóna Guðný Eyjólfsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica