Félags- og vinnumarkaðsráðuneyti

1486/2024

Reglugerð um desemberuppbætur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna árið 2024.

1. gr.

Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um desemberuppbætur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna fyrir desember 2024.

Tryggingastofnun ríkisins annast framkvæmd reglugerðarinnar.

 

2. gr.

Desemberuppbót.

Foreldri langveiks eða alvarlega fatlaðs barns sem fær greiðslu í desember 2024 samkvæmt lögum um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna á rétt á desemberuppbót að fjárhæð 81.006 kr. enda hafi foreldrið fengið mánaðarlegar greiðslur allt árið 2024.

Foreldri sem hefur fengið greiðslur skemur en tólf mánuði á árinu 2024 á rétt á hlutfallslegri desemberuppbót skv. 1. mgr. í samræmi við þann tíma sem foreldrið hefur fengið greiðslur á árinu samkvæmt lögum um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna. Miða skal við 1/12 fyrir hvern mánuð.

Desemberuppbót skv. 2. mgr. skal þó aldrei nema lægri fjárhæð en 20.252 kr.

 

3. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 31. gr. laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, nr. 22/2006, öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1418/2023, um desemberuppbætur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna árið 2023.

 

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, 27. nóvember 2024.

 

Bjarni Benediktsson.

Jóna Guðný Eyjólfsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica