Félags- og vinnumarkaðsráðuneyti

1482/2024

Reglugerð um fjárhæðir frítekjumarka (tekjumarka) almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar fyrir árið 2025.

1. gr.

Frítekjumörk (tekjumörk) bóta samkvæmt lögum nr. 100/2007, um almannatryggingar, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2025: 

    frítekjumark kr. efra tekjumark kr.
a. Vegna fjármagnstekna skv. 3. mgr. 30. gr. 98.640  
b. Tekjutrygging vegna atvinnutekna    
  skv. ákvæði til bráðabirgða 2.400.000  
c. Ellilífeyrir skv. 3. mgr. 22. gr.    
  i.  Almennt 438.000 9.705.227
  ii. Vegna atvinnutekna 2.400.000  
d. Hálfur ellilífeyrir skv. 4. mgr. 22. gr.    
  i.  Almennt 3.900.000 8.533.627
  ii. Vegna atvinnutekna 2.400.000  
g. Örorkulífeyrir skv. 4. mgr. 30. gr. 2.575.220 11.339.220
h. Örorkustyrkur skv. 1. mgr. 27. gr. 2.575.220 11.213.620
i. Örorkustyrkur skv. 2. mgr. 27. gr. 2.575.220 11.339.220
j. Aldursviðbót (100%) skv. 1. mgr. 29. gr. 2.575.220 11.339.220
k. Tekjutrygging vegna lífeyrissjóðstekna    
  skv. 5. mgr. 30. gr. 328.800  
l. Ráðstöfunarfé skv. 3. mgr. 38. gr.   1.925.925

 

2. gr.

Frítekjumörk (tekjumörk) bóta samkvæmt lögum nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2025: 

    frítekjumark kr. efra tekjumark kr.
a. Endurhæfingarlífeyrir skv. 3. mgr. 7. gr. 2.575.220 11.339.220
b. Heimilisuppbót með ellilífeyri skv. 2. mgr. 8. gr.    
  i.   Almennt 438.000 9.293.542
  ii.  Vegna atvinnutekna 2.400.000  
  iii. Með hálfum ellilífeyri 3.900.000 8.327.798
  iv. Með hálfum ellilífeyri vegna atvinnutekna 2.400.000  
c. Heimilisuppbót með örorkulífeyri skv. 3. mgr. 8. gr.    
  i.   Vegna atvinnutekna 2.400.000  
  ii.  Vegna lífeyrissjóðstekna 328.800  
d. Sérstök uppbót skv. 2. mgr. 9. gr.:    
  i.   Til lífeyrisþega sem fær greidda heimilisuppbót   439.499
  ii.  Til lífeyrisþega sem fær ekki greidda heimilisuppbót   349.539

   

3. gr.

Tekjumörk bóta samkvæmt reglugerð nr. 1200/2018, um heimilisuppbót og uppbætur á lífeyri, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2025:

    efra tekjumark kr.
Frekari uppbætur skv. 11. gr.   3.924.048

 

4. gr.

Frítekjumark: Með frítekjumarki er í reglugerð þessari átt við fjárhæð tekna á ári sem ekki hefur áhrif á bætur.

Efra tekjumark: Með efra tekjumarki er í reglugerð þessari átt við fjárhæð tekna á ári sem veldur því að bætur falla niður.

 

5. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 63. gr., sbr. 62. gr. laga nr. 100/2007, um almanna­tryggingar, og 14. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, öðlast gildi 1. janúar 2025. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1412/2023, um fjárhæðir frítekjumarka (tekjumarka) almanna­trygginga og félagslegrar aðstoðar fyrir árið 2024.

 

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, 27. nóvember 2024.

 

Bjarni Benediktsson.

Jóna Guðný Eyjólfsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica