Félags- og vinnumarkaðsráðuneyti

1455/2024

Reglugerð um fjárhæð atvinnuleysistrygginga.

1. gr.

Hámarksfjárhæð tekjutengdra atvinnuleysisbóta í hverjum mánuði skv. 32. gr. laga um atvinnu­leysis­tryggingar miðast við tryggingahlutfall hins tryggða þannig að þær nemi aldrei hærri fjárhæð en 575.246 kr. á mánuði miðað við óskerta atvinnuleysistryggingu, sbr. 15. eða 19. gr. laganna. Við útreikning á atvinnuleysisbótum fyrir hvern dag skal miða við 21,67 daga í mánuði.

 

2. gr.

Sá sem telst að fullu tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar á rétt til óskertra grunnatvinnuleysisbóta sem skulu nema 364.895 kr. á mánuði. Lágmarksréttur til atvinnuleysis­trygginga veitir rétt til ¼ hluta grunnatvinnuleysisbóta.

 

3. gr.

Frítekjumark skv. 4. mgr. 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar skal vera 89.817 kr. á mánuði.

 

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 3. mgr. 33. gr. og 4. mgr. 36. gr. laga nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar, gildir um fjárhæð atvinnuleysistrygginga sem reiknast fyrir tíma­bilið frá og með 1. janúar 2025 og síðar og öðlast gildi 1. janúar 2025. Frá sama tíma fellur brott reglugerð nr. 1422/2023, um fjárhæð atvinnuleysistrygginga.

 

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, 27. nóvember 2024.

 

Bjarni Benediktsson.

Bjarnheiður Gautadóttir.

Reglugerð sem fellur brott:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica