Félags- og vinnumarkaðsráðuneyti

1451/2024

Reglugerð um hámark ábyrgðar Ábyrgðasjóðs launa.

1. gr.

Hámarksábyrgð á kröfum launafólks skv. a- og b-lið 5. gr., sbr. einnig 6. gr. laga nr. 88/2003, um Ábyrgðasjóð launa, sem gjaldfalla fyrir 1. apríl 2024, skal vera 633.000 kr. fyrir hvern mánuð. Hámarksábyrgð á kröfum um orlofslaun skv. c-lið 5. gr., sbr. einnig 6. gr. laganna, sem gjaldfalla fyrir 1. apríl 2024 skal vera 1.014.000 kr.

 

2. gr.

Hámarksábyrgð á kröfum launafólks skv. a- og b-lið 5. gr., sbr. einnig 6. gr. laga nr. 88/2003, um Ábyrgðasjóð launa, sem gjaldfalla á tímabilinu frá og með 1. apríl 2024 til og með 31. desember 2024, skal vera 850.000 kr. fyrir hvern mánuð. Hámarksábyrgð á kröfum um orlofslaun skv. c-lið 5. gr., sbr. einnig 6. gr. laganna, sem gjaldfalla á tímabilinu frá og með 1. apríl 2024 til og með 31. desember 2024 skal vera 1.362.000 kr.

 

3. gr.

Hámarksábyrgð á kröfum launafólks skv. a- og b-lið 5. gr., sbr. einnig 6. gr. laga nr. 88/2003, um Ábyrgðasjóð launa, sem gjaldfalla frá og með 1. janúar 2025, skal vera 970.000 kr. fyrir hvern mánuð. Hámarksábyrgð á kröfum um orlofslaun skv. c-lið 5. gr., sbr. einnig 6. gr. laganna, sem gjald­falla frá og með 1. janúar 2025 skal vera 1.554.000 kr.

 

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 1. mgr. 6. gr. laga nr. 88/2003, um Ábyrgðasjóð launa, öðlast gildi 1. janúar 2025. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 377/2024, um hámark ábyrgðar Ábyrgðasjóðs launa.

 

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, 27. nóvember 2024.

 

Bjarni Benediktsson.

Bjarnheiður Gautadóttir.

Reglugerð sem fellur brott:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica