Fjármála- og efnahagsráðuneyti

1437/2024

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 381/2019, um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um afleiðuviðskipti, miðlæga mótaðila og afleiðuviðskiptaskrár.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein, svohljóðandi:

1. gr. framseldrar reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/822 frá 24. mars 2021 um breytingu á framseldum reglugerðum (ESB) nr. 1003/2013 og (ESB) 2019/360 að því er varðar árleg eftirlitsgjöld sem Evrópska verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunin innheimtir af viðskiptaskrám fyrir 2021, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 100/2023 frá 28. apríl 2023, skal gilda hér á landi. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 92 frá 20. desember 2023, bls. 111-114.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 6. tölul. 1. mgr. 15. gr. laga nr. 15/2018, um afleiðuviðskipti, miðlæga mótaðila og afleiðuviðskiptaskrár, og öðlast þegar gildi.

 

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 4. desember 2024.

 

F. h. r.

Guðrún Þorleifsdóttir.

Eggert Páll Ólason.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica