Matvælaráðuneyti

1412/2024

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 684/2024 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2782 um aðferðir við sýnatöku og greiningu vegna eftirlits með innihaldi sveppaeiturs í matvælum og um niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 401/2006.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 2. tölul., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/885 frá 20. mars 2024 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2023/2782 um aðferðir við sýnatöku og grein­ingu vegna eftirlits með innihaldi sveppaeiturs í matvælum að því er varðar aðferð við sýna­töku úr þurrkuðum kryddjurtum, jurtatei (þurrkuð vara), tei (þurrkuð vara) og kryddi í duft­formi. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndar­innar nr. 55/2024 frá 15. mars 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópu­sambandsins nr. 85 frá 21. nóvember 2024, bls. 428.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 29. nóvember 2024.

 

Bjarni Benediktsson.

Svava Pétursdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica