Prentað þann 7. apríl 2025
1412/2022
Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð um fjárhagslegar viðmiðanir, nr. 162/2021.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. reglugerðarinnar:
- Í stað orðanna "og nr. 388/2021 frá 10. desember 2021" í inngangsmálslið greinarinnar kemur: nr. 388/2021 frá 10. desember 2021 og nr. 149/2022 frá 29. apríl 2022.
-
Við greinina bætast þrír nýir töluliðir, svohljóðandi:
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1816 frá 17. júlí 2020 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/1011 að því er varðar útskýringu í yfirlýsingunni um viðmiðun um hvernig umhverfis-, félags- og stjórnunarþættir endurspeglast í hverri viðmiðun sem gerð er og birt, sem er birt á bls. 564 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 32 frá 19. maí 2022.
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1817 frá 17. júlí 2020 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/1011 að því er varðar lágmarksinnihald útskýringar um hvernig umhverfis-, félags- og stjórnunarþættir endurspeglast í aðferðafræði viðmiðunarinnar, sem er birt á bls. 575 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 32 frá 19. maí 2022.
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1818 frá 17. júlí 2020 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/1011 að því er varðar lágmarksstaðla fyrir viðmiðanir ESB vegna loftslagstengdra umbreytinga og viðmiðanir ESB sem eru lagaðar að Parísarsamningnum, sem er birt á bls. 580 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 32 frá 19. maí 2022, með þeim aðlögunum sem leiðir af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 149/2022 frá 29. apríl 2022, sem er birt á bls. 107 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 61 frá 22. september 2022.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í c-, e- og l-lið 1. mgr. 13. gr. laga um fjárhagslegar viðmiðanir, nr. 7/2021, öðlast gildi 1. janúar 2023.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 15. nóvember 2022.
F. h. r.
Guðrún Þorleifsdóttir.
Gunnlaugur Helgason.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.