Prentað þann 7. apríl 2025
1401/2024
Reglugerð um breytingu á reglugerð um verðbréfaréttindi, nr. 1125/2021.
1. gr.
Við reglugerðina bætist ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Þrátt fyrir 2. og 3. mgr. 8. gr. skulu þeir sem öðluðust verðbréfaréttindi skv. 3. mgr. 147. gr. laga um markaði fyrir fjármálagerninga, nr. 115/2021, hafa frest til 1. júlí 2025 til að ljúka endurmenntun samkvæmt reglugerð þessari.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 3. mgr. 41. gr. laga um markaði fyrir fjármálagerninga, nr. 115/2021, öðlast þegar gildi.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 19. nóvember 2024.
F. h. r.
Guðrún Þorleifsdóttir.
Sigríður Rafnar Pétursdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.