Fjármála- og efnahagsráðuneyti

1400/2024

Reglugerð um greiðslu barnabóta.

1. gr.

Almennt.

Ríkissjóður skal greiða barnabætur vegna hvers barns innan 18 ára aldurs til framfæranda barnsins eins og nánar er kveðið á um í reglugerð þessari.

 

2. gr.

Réttur til barnabóta.

Greiða skal barnabætur með hverju barni innan 18 ára aldurs á tekjuárinu, sem heimilis­fast er hér á landi og er á framfæri þeirra manna sem skattskyldir eru skv. 1. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003.

Framfærandi barns skv. 1. mgr. telst sá sem hefur barnið hjá sér og annast fram­færslu þess í lok tekjuárs. Sá er greiðir meðlag með barni telst ekki framfærandi í þessu sam­bandi. Skilyrði 1. málsl. eru uppfyllt þótt barnið dvelji tímabundið fjarri raunverulegu heimili, t.d. vegna náms.

Hjón, sem skattlögð eru skv. 62. gr. laga nr. 90/2003, teljast bæði framfærendur og skipt­ast barnabætur milli þeirra til helminga. Hið sama gildir um sambúðarfólk sem uppfyllir í lok tekjuárs skilyrði 3. mgr. 62. gr. laga nr. 90/2003, enda þótt það óski ekki eftir að vera skattlagt samkvæmt þeirri grein. Að sama skapi teljast þeir sem halda heimili saman ásamt barni sínu framfærendur í skilningi ákvæðisins þótt skilyrði til skráningar á sambúð séu ekki uppfyllt. Við slíkar aðstæður skal ákvarða barnabætur eins og um hjón sé að ræða.

Sé svo ástatt að einungis annað hjóna er skattskylt hér á landi skv. 1. gr. laga nr. 90/2003, skal reikna því fullar barnabætur vegna þeirra barna hjónanna sem dveljast hér á landi eftir þeim reglum sem gilda um hjón enda liggi fyrir upplýsingar um tekjur beggja ásamt upplýs­ingum um fengnar barnabætur eða hliðstæðar greiðslur erlendis vegna sömu barna.

Þegar foreldrar hafa samið um skipta búsetu barns samkvæmt ákvæðum barnalaga teljast, þrátt fyrir ákvæði 2. og 3. mgr., báðir foreldrar framfærendur þess í skilningi ákvæðisins. Ákvarðast barna­bætur vegna barnsins til hvors foreldris skv. 3. gr. í samræmi við fjölskyldustöðu hvors þeirra fyrir sig í árslok og aldur barns og takmarkast við helming af útreiknuðum barnabótum eftir að tekið hefur verið tillit til tekjuskerðingar miðað við framangreindar aðstæður hjá hvoru þeirra um sig.

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. þessarar greinar er heimilt að ákvarða hlutfallslegar barnabætur með börnum sem ekki eru heimilisföst hér á landi en eru á framfæri ríkisborgara hins Evrópska efnahags­svæðis, aðildarríkis stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða í Færeyjum, enda sé framfærandi skattskyldur hér á landi skv. 1. gr. laga nr. 90/2003 eða tryggður á grundvelli 4. eða 5. gr. laga um almannatryggingar, nr. 100/2007. Útreikningur hlutfallslegra barnabóta skv. 1. málsl. miðast við það tímabil sem framfærandi hefur framtalsskyldar tekjur hér á landi. Skilyrði fyrir ákvörðun hlutfallslegra barnabóta samkvæmt þessari málsgrein eru þau að börnin séu heimilisföst í einhverju ríkja hins Evrópska efnahagssvæðis, í aðildarríki stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða í Færeyjum og að fram séu lögð fullnægjandi gögn frá bæru stjórnvaldi í því landi þar sem börnin eru heimilisföst. Sá sem rétt kann að eiga til hlutfallslegra barnabóta með börnum sem ekki hafa heimilisfesti á Íslandi skal sækja um bætur til ríkisskattstjóra og leggja fram upplýsingar frá bærum stjórnvöldum um tekjur framfærenda ásamt upplýsingum um barnabætur eða hlið­stæðar greiðslur vegna sömu barna sem greiddar hafa verið erlendis.

Fyrir barn sem öðlast heimilisfesti hér á landi á tekjuárinu skal einungis greiða barna­bætur í hlutfalli við dvalartíma þess hér á landi á því ári. Þannig skal fjárhæð barnabóta skv. 3. gr. og skerð­ingar­mörk vegna tekna skv. 4. gr. ákvarðast í hlutfalli við dvalartímann.

 

3. gr.

Fjárhæð barnabóta.

Greiða skal tekjutengdar barnabætur með hverju barni innan 18 ára aldurs á tekjuárinu, sem árlega skulu nema 345.000 kr. Tekjutengdar barnabætur með hverju barni einstæðra foreldra skulu vera 514.500 kr.

Til viðbótar barnabótum skv. 1. mgr. skal greiða tekjutengdar barnabætur með hverju barni yngri en sjö ára á tekjuárinu. Skulu þær árlega nema 130.000 kr.

 

4. gr.

Skerðing barnabóta vegna tekna.

Barnabætur skv. 3. gr. skal skerða í jöfnu hlutfalli við tekjuskattsstofn umfram 11.688.000 kr. hjá hjónum og umfram 5.844.000 kr. hjá einstæðu foreldri.

Með tekjuskattsstofni í þessu sambandi er átt við tekjur skv. II. kafla laga nr. 90/2003, að teknu tilliti til frádráttar skv. 1., 3., 4. og 5. tölul. A-liðar 1. mgr. og 2. mgr. 30. gr. laga nr. 90/2003 og frá­dráttar skv. 31. gr. laga nr. 90/2003. Þá skulu tekjur sem maki framfæranda barns skv. 1. málsl. 7. mgr. A-liðar 68. gr. laga nr. 90/2003 aflar erlendis reiknast með tekjuskattsstofni samkvæmt þessari grein. Skerðingarhlutfall tekjutengdra barnabóta skv. 3. gr. skal vera 4% með öllum börnum óháð fjölda þeirra.

Fjárhæð barnabóta skal skerða um þær barnabætur eða hliðstæðar bætur sem greiddar hafa verið erlendis frá á sama tekjuári vegna barnsins.

 

5. gr.

Ákvörðun barnabóta.

Barnabætur skulu endanlega ákveðnar á grundvelli skattframtals við álagningu, sbr. X. kafla laga nr. 90/2003. Barnabætur sem eru ákvarðaðar lægri en 5.000 kr. á hvern framfæranda á grund­velli skattframtals falla niður. Ákvörðun ríkisskattstjóra um fyrirframgreiðslu barnabóta samkvæmt reglu­gerð þessari skal vera endanleg úrlausn málsins á stjórnsýslustigi.

Barnabætur skulu greiddar með tveimur jöfnum greiðslum. Fyrri greiðslan skal fara fram eigi síðar en 1. júní en síðari greiðslan eigi síðar en 1. október.

 

6. gr.

Fyrirframgreiðsla barnabóta á fæðingarári barns.

Á fæðingarári barns skal ríkissjóður greiða fyrir fram á því tekjuári upp í barnabætur með börnum sem upplýsingar liggja fyrir um í lok hvers fyrstu þriggja ársfjórðunga tekjuársins og miða skal við fjölskyldustöðu eins og hún er skráð í lok hvers fyrrgreinds tímabils. Barnabætur samkvæmt þessari grein falla niður frá og með næsta ársfjórðungi ef barnið og framfærandi þess flytja úr landi eða við andlát barns.

Við útreikning á skerðingu með tilliti til tekna framfæranda skal miða við 2. mgr. 7. gr.

Fyrirframgreiðsla samkvæmt þessari grein greiðist eftir atvikum og að hámarki með þremur jöfnum greiðslum á tekjuárinu. Greiða skal fyrstu fyrirframgreiðslu barnabóta samkvæmt þessari grein mánuði eftir lok hvers ársfjórðungs. Ákvörðun um fyrirframgreiðslu barnabóta á fæðingarári barns samkvæmt ákvæði þessu skal taka mið af hámarksfjárhæð barnabóta fyrir hjón og sambúðar­fólk skv. 3. mgr. 7. gr., sbr. 1. málsl. 3. mgr. 2. gr., og reiknast sem hlutfall af fjárhæð barnabóta sem gilda við álagningu á fæðingarárinu, þannig:

  1. 12% 1. maí vegna barna fæddra í janúar, febrúar og mars.
  2. 12% 1. ágúst vegna barna fæddra í apríl, maí, júní og á fyrsta ársfjórðungi.
  3. 12% 1. nóvember vegna barna fæddra í júlí, ágúst, september og fyrr á árinu.

Um fyrirframgreiðslu barnabóta vegna barna sem fædd eru í október, nóvember og desember fer skv. 2. og 6. mgr. 7. gr.

 

7. gr.

Fyrirframgreiðsla barnabóta á álagningarári.

Þar til álagning liggur fyrir skv. 5. gr. skal ríkissjóður greiða á álagningarári fyrir fram upp í barna­bætur ársins vegna barna sem voru yngri en 18 ára í árslok miðað við fjölskyldu­stöðu fram­teljanda eins og hún var í árslok.

Við útreikning á skerðingu fyrirframgreiðslu með tilliti til tekna framfæranda, sbr. 4. gr., skal taka tillit til fyrirliggjandi upplýsinga um stað­greiðsluskyldar tekjur vegna síðustu tólf mánaða sem fyrir­liggjandi eru í staðgreiðslukerfi ríkisskattstjóra ásamt upplýsingum úr skattframtali fyrra árs, m.a. um tekjur utan staðgreiðslu, fjármagnstekjur og hagnað af atvinnurekstri.

Fyrirframgreiðsla þessi skal nema 50% af áætluðum barnabótum ársins, að frádregnum barna­bótum skv. 6. gr., og greiðist með tveimur jöfnum greiðslum. Fyrri greiðslan skal fara fram eigi síðar en 1. febrúar en síðari greiðslan eigi síðar en 1. maí á álagningarári.

Heimilt er framteljanda að sækja um breytingu á fyrirframgreiðslu skv. 1. mgr. til ríkis­skattstjóra á grund­velli fyrirliggjandi skattframtals álagningarársins ef tekjur og eignir samkvæmt því skatt­framtali víkja að verulegu leyti frá þeim upplýsingum sem lagðar voru til grundvallar við ákvörðun fyrirframgreiðslunnar. Ríkisskattstjóri skal að jafnaði ekki taka til greina umsókn framteljanda nema að breytingin leiði til a.m.k. 25% hækkunar eða lækkunar á fyrirframgreiðslunni.

Liggi ekki fyrir fullnægjandi upplýsingar að mati ríkisskattstjóra til að byggja ákvörðun barna­bóta á, t.d. þegar skattframtali fyrra árs hefur ekki verið skilað, er engin fyrirframgreiðsla ákvörðuð nema að fenginni sérstakri umsókn frá framteljanda studdri fullnægjandi gögnum.

Fjársýsla ríkisins annast útborgun barnabóta.

 

8. gr.

Skuldajöfnun barnabóta.

Barnabætur greiðast til framfæranda barns að því marki sem eftirstöðvum nemur þegar frá hafa verið dregnar fyrirframgreiddar barnabætur og ofgreiddar barnabætur. Barnabótum verður ekki skulda­jafnað á móti opinberum gjöldum til ríkissjóðs, opinberum gjöldum til sveitarfélaga og vangreiddum meðlögum til Innheimtustofnunar sveitarfélaga. Heimilt er að gera aðför til tryggingar greiðslu ofgreiddra barnabóta á grundvelli úrlausna eða ákvarðana erlendra dómstóla eða yfirvalda með sáttum gerðum fyrir þeim sem íslenska ríkið hefur að þjóðarétti og með lögum skuldbundið sig til að viðurkenna.

 

9. gr.

Leiðrétting barnabóta.

Komi í ljós að framfærandi hefur ranglega notið barnabóta samkvæmt reglugerð þessari eða barnabætur hafa verið ákvarðaðar of háar skal viðkomanda gert að endurgreiða þær. Um slíka leið­réttingu ríkisskattstjóragilda ákvæði 95. gr. og 96. gr. laga nr. 90/2003, eftir því sem við getur átt.

 

10. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í A-lið 68. gr. og 121. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, öðlast gildi 1. janúar 2025. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð um greiðslu barnabóta, nr. 555/2004.

 

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 27. nóvember 2024.

 

F. h. r.

Helga Jónsdóttir.

Ingibjörg Helga Helgadóttir.

Reglugerð sem fellur brott:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica