Prentað þann 8. apríl 2025
1324/2019
Reglugerð um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 714/2009 um skilyrði fyrir aðgangi að neti fyrir raforkuviðskipti yfir landamæri og um niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 1228/2003.
Efnisyfirlit
1. gr.
Eftirtalin reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB), sem vísað er til í lið 20 í IV. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 93/2017, frá 5. maí 2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 714/2009, frá 13. júlí 2009, um skilyrði fyrir aðgangi að neti fyrir raforkuviðskipti yfir landamæri og um niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 1228/2003.
Reglugerðin skal gilda á Íslandi með þeirri aðlögun sem fram kemur í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar.
2. gr.
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 714/2009 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 31/2017, 18. maí 2017, bls. 569.
3. gr.
Við gildistöku reglugerðar þessarar fellur úr gildi reglugerð nr. 284/2010 um innleiðingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB), nr. 1228/2003 frá 26. júní 2003, um skilyrði fyrir aðgangi að neti fyrir raforkuviðskipti yfir landamæri.
4. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 45. gr. raforkulaga nr. 65/2003 með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 16. desember 2019.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
Ingvi Már Pálsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.