Prentað þann 14. apríl 2025
1306/2023
Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 160/2012 um útdráttarleysa til notkunar við framleiðslu matvæla og innihaldsefna í matvælum.
1. gr.
Eftirfarandi breyting er gerð á II. hluta I. viðauka við reglugerðina:
Á eftir færslunni fyrir hexan kemur ný færsla, svohljóðandi:
2-metýloxólan | Framleiðsla eða þætting fitu og olíu og framleiðsla á kakósmjöri | 1 mg/kg í fitu eða olíu eða kakósmjöri |
Tilreiðsla á fitusneyddum prótínafurðum og fitusneyddu mjöli | 10 mg/kg í matvælum sem innihalda fitusneyddar prótínafurðir og fitusneytt mjöl | |
30 mg/kg í fitusneyddum sojaafurðum eins og þær eru seldar til lokaneytanda | ||
Tilreiðsla á fitusneyddu kornkími | 5 mg/kg í fitusneyddu kornkími |
2. gr.
Eftirfarandi breyting er gerð á III. hluta I. viðauka við reglugerðina:
Á eftir færslunni fyrir hexan kemur ný færsla, svohljóðandi:
2-metýloxólan | 1 mg/kg |
3. gr.
Nýr IV. hluti bætist við I. viðauka reglugerðarinnar, svohljóðandi:
IV. HLUTI
Sértæk hreinleikaskilyrði fyrir útdráttarleysa sem eru tilgreindir í I. viðauka:
2-metýloxólan
CAS-númer | 96-47-9 |
Magngreining | Innihald minnst 99,9%, gefið upp miðað við þurrt efni |
Hreinleiki | |
Fúran | Ekki meira en 50 mg/kg (gefið upp miðað við þurrt efni) |
2-metýlfúran | Ekki meira en 500 mg/kg (gefið upp miðað við þurrt efni) |
Etanól | Ekki meira en 450 mg/kg (gefið upp miðað við þurrt efni) |
4. gr.
Reglugerðin er til innleiðingar á tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/175 frá 26. janúar 2023 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/32/EB um metýloxólan. Tilskipunin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 217/2023, frá 22. september 2023. Tilskipunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 79, frá 2. nóvember 2023, bls. 410.
5. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í lögum nr. 93/1995, um matvæli.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 29. nóvember 2023.
Svandís Svavarsdóttir.
Iðunn María Guðjónsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.