I. KAFLI
Almenn ákvæði.
1. gr.
Tóbaksvörur má aðeins hafa til sölu eða dreifingar ef útlit, stærð og lögun tóbaksvöru er í samræmi við reglugerð þessa og mynd- og textaviðvaranir um skaðsemi tóbaks og upplýsingar um skaðleg tóbaksefni séu á umbúðum hennar samkvæmt ákvæðum reglugerðar þessarar.
2. gr.
Orðskýringar.
Í reglugerð þessari hafa eftirfarandi orð svofellda merkingu:
II. KAFLI
Hámark skaðlegra efna og mælingar.
3. gr.
Hámark skaðlegra efna.
Sígarettur sem settar eru á markað hér á landi mega ekki gefa frá sér meira, hvert stykki, en 10 mg af tjöru, 1 mg af níkótíni og 10 mg af kolsýringi.
ÁTVR tilkynnir Eftirlitsstofnun EFTA ef breytingar verða á hámarksgildi losunar skv. 1. mgr.
4. gr.
Losun og mæliaðferðir.
Mæla skal hve mikla tjöru, nikótín og kolsýring sígarettur gefa frá sér, sbr. 3. gr., samkvæmt ISO-stöðlum 4387 fyrir tjöru, 10315 fyrir nikótín og 8454 fyrir kolsýring. Nákvæmni upplýsinga á sígarettupökkum um tjöru og nikótín skal sannprófa í samræmi við ISO-staðal 8243.
Mæling á losun skv. 1. mgr. skulu framkvæmdar eða sannreyndar af rannsóknarstofum sem ÁTVR viðurkennir að fenginni umsögn embættis landlæknis. Embætti landlæknis fer með eftirlit með rannsóknarstofum. Þessar rannsóknarstofur skulu ekki vera, beint eða óbeint, í eigu eða undir yfirráðum framleiðenda eða innflytjenda tóbaksvara.
ÁTVR skal senda Eftirlitsstofnun EFTA skrá yfir samþykktar rannsóknarstofur skv. 2. mgr. þar sem greint er frá þeim viðmiðum sem notuð eru fyrir viðurkenningu þeirra og aðferðum við eftirlit. ÁTVR skal sjá til þess að skráin sé uppfærð í hvert sinn sem breytingar eru gerðar. Þá skal ÁTVR senda Eftirlitsstofnun EFTA upplýsingar um þær mæliaðferðir sem notaðar eru til að mæla losun samkvæmt þessari grein.
ÁTVR getur jafnframt, í samráði við embætti landlæknis, krafist þess af framleiðendum eða innflytjendum tóbaks að þeir geri ýmsar aðrar prófanir til þess að meta magn annarra efna sem tóbaksvörur gefa frá sér eftir vörumerki og tegund og til þess að meta áhrif þessara efna á heilsu, meðal annars að teknu tilliti til ávanabindandi áhrifa þeirra. Þá getur ÁTVR krafist þess að slíkar prófanir verði gerðar eða sannreyndar á viðurkenndum prófunarstofum skv. 2. mgr.
ÁTVR skal tryggja að upplýsingum sem lagðar eru fram í samræmi við 4. mgr. sé dreift á viðhlítandi hátt í því skyni að upplýsa neytendur. Þar sem við á skal tekið tillit til allra upplýsinga sem varða viðskiptaleyndarmál.
III. KAFLI
Skýrslugjöf um innihaldsefni og losun.
5. gr.
Skýrslugjöf.
Framleiðendur og innflytjendur tóbaksvara skulu áður en tóbaksvara er sett á markað afhenda ÁTVR upplýsingar, eftir vöruheiti og tegund tóbaksvara:
Framleiðendur og innflytjendur jurtavara til reykinga skulu afhenda ÁTVR skrá yfir öll innihaldsefni ásamt magni þeirra, sem eru notuð við framleiðslu á slíkum vörum, eftir vöruheiti og tegund.
Framleiðendur og innflytjendur sígarettna og vafningstóbaks skulu aukinheldur leggja fram tækniskjal þar sem fram kemur lýsing á aukefnum sem eru notuð og eiginleikum þeirra.
Ef um er að ræða nýja eða breytta vöru skulu þær upplýsingar sem krafist er skv. 1. og 2. mgr. sendar til ÁTVR áður en varan er sett á markað.
Framleiðendur og innflytjendur tóbaksvara skulu tilgreina þær aðferðir sem notaðar eru til að mæla losun til ÁTVR, aðra en losun fyrir tjöru, nikótín og kolsýring skv. 1. mgr. 4. gr.
Framleiðendur og innflytjendur skulu senda ÁTVR og embætti landlæknis árlega upplýsingar um sölumagn tóbaksvara eftir vöruheiti og tegund, annaðhvort í stykkjatali eða eftir kílóum.
Framleiðendur og innflytjendur tóbaksvara skulu leggja fram þær upplýsingar sem um getur í grein þessari um innihaldsefni, losun og sölumagn á sameiginlegu rafrænu skýrslusniði, sbr. viðauka I. Upplýsingarnar skulu lagðar fram í gegnum sameiginlega rafræna aðgangsgátt. Um framlagningu upplýsinga í gegnum sameiginlega rafræna aðgangsgátt fer að öðru leyti eftir framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnar (ESB) 2015/2186 frá 25. nóvember 2015 sem innleidd er með reglugerð þessari.
6. gr.
Rannsóknir og skráning aukefna.
Til viðbótar við kvaðir um skýrslugjöf sem mælt er fyrir um í 5. gr. skulu auknar kvaðir um skýrslugjöf framleiðenda og innflytjenda gilda um tiltekin aukefni í sígarettum og vafningstóbaki sem er að finna í forgangsskrá sem birt er í viðauka II við reglugerð þessa.
Framleiðendur og innflytjendur sígarettna og vafningstóbaks skulu framkvæma og láta ÁTVR í té ítarlegar rannsóknir yfir þau aukefni sem er að finna í forgangsskrá skv. viðauka II. Þar skal koma fram:
Í þeim rannsóknum sem kveðið er á um í 2. mgr. skal taka tillit til fyrirhugaðrar notkunar viðkomandi vara og athuga einkum þá losun sem brennsla þeirra hefur í för með sér hvað varðar viðkomandi aukefni. Þá skal jafnframt athuga samspil aukefnisins og annarra innihaldsefna sem eru í viðkomandi vörum. Framleiðendur og innflytjendur sem nota sama aukefni í vörur sínar er heimilt að gera sameiginlega rannsókn þegar þeir nota aukefnið í sambærilega vörusamsetningu.
Framleiðendur og innflytjendur þeirra vara sem kveðið er á um í þessari grein skulu taka saman skýrslu um niðurstöður þeirra rannsókna sem kveðið er á um í 1. mgr.. Í skýrslunni skal vera samantekt og ítarlegt yfirlit þar sem teknar eru saman tiltækar vísindarannsóknir um hvert aukefni auk annarra gagna sem framleiðendur og innflytjendur kunna að búa yfir um áhrif aukefnisins.
Upplýsingar um innihaldsefni samkvæmt þessari grein skulu birtar með rafrænum hætti á vefsíðu ÁTVR og vera aðgengilegar almenningi, að teknu tilliti til viðskiptaleyndarmála viðkomandi vöru.
7. gr.
Tilkynning um nýjar tóbaksvörur.
Framleiðendur og innflytjendur, sem hyggjast setja nýjar tóbaksvörur á markað hér á landi, skulu senda ÁTVR tilkynningu um það sex mánuðum áður en markaðssetning er fyrirhuguð. Tilkynningin skal lögð fram rafrænt og henni skal fylgja ítarleg lýsing á tóbaksvörunni ásamt leiðbeiningum um neyslu hennar og upplýsingum um innihaldsefni og losun í samræmi við reglugerð þessa. Framleiðendur og innflytjendur, sem leggja fram tilkynningu um nýja tóbaksvöru, skulu einnig senda ÁTVR eftirfarandi upplýsingar:
ÁTVR getur óskað eftir því að framleiðendur eða innflytjendur sendi nýjar eða uppfærðar upplýsingar um athuganir, rannsóknir og aðrar upplýsingar skv. 1. mgr. Þá getur ÁTVR óskað eftir því að framleiðendur og innflytjendur sendi, auk þeirra prófana og upplýsinga sem þeim er skylt að standa skil á skv. reglugerð þessari, viðbótarupplýsingar eða geri viðbótarprófanir.
IV. KAFLI
Merking og umbúðir.
8. gr.
Viðvörunarmerkingar.
Á hverjum einingarpakka sem inniheldur tóbaksvöru og öllum ytri umbúðum skulu vera viðvörunarmerkingar, eins og kveðið er á um í þessari reglugerð. Viðvörunarmerkingar skulu vera á íslensku.
Viðvörunarmerkingarnar skulu þekja allt yfirborð einingarpakkans eða ytri umbúða, sem er frátekið fyrir þær samkvæmt reglugerð þessari.
Viðvörunarmerkingar skulu vera þannig gerðar að ekki sé hægt að fjarlægja þær af einingarpökkum og öllum ytri umbúðum, þær séu óafmáanlegar og að fullu sýnilegar, þ.m.t. að þær séu ekki að hluta til eða að öllu leyti faldar eða rofnar með tollborðum, verðmerkingum, öryggisþáttum, umbúðum, hlífum, kössum eða öðrum atriðum þegar tóbaksvörur eru settar á markað.
Heimilt er að festa viðvörunarmerkingar á einingarpakka, sem innihalda aðrar tóbaksvörur en sígarettur og vafningstóbak í pungum, með límmiðum, að því tilskildu að ekki sé hægt að fjarlægja slíka límmiða. Viðvörunarmerkingarnar skulu haldast óskaddaðar þegar einingarpakkinn er opnaður, nema þegar um er að ræða pakka með flettiloki þar sem viðvörunarmerkingarnar geta rofnað þegar pakkinn er opnaður en einungis þannig að tryggt sé að myndrænn heilleiki og sýnileiki texta, ljósmynda og upplýsinga um aðstoð við að hætta að reykja, haldi sér.
Viðvörunarmerkingarnar skulu ekki á neinn hátt fela eða rjúfa tollborða, öryggisþætti, verðmerkingar, einkvæmt auðkenni eða aðrar merkingar sem ætlað er að rekja feril og slóð vörunnar.
Stærð viðvörunarmerkinganna, sem kveðið er á um í 9., 10., 11. og 12. gr., skal reiknuð út í tengslum við flötinn sem um er að ræða þegar pakkinn er lokaður.
Viðvörunarmerkingarnar skulu vera í svörtum ramma, sem er 1 millimetri á breidd, inni á yfirborðsfletinum sem er frátekinn fyrir þessar viðvörunarmerkingar að undanskildum viðvörunarmerkingum skv. 11. gr.
9. gr.
Almennar viðvaranir og upplýsingatexti á tóbaksvörum til reykinga.
Á sérhverjum einingarpakka og öllum ytri umbúðum tóbaksvara til reykinga skulu vera eftirfarandi viðvaranir og upplýsingar:
Að því er varðar sígarettupakka og vafningstóbak í teningslaga pökkum skal almenna viðvörunin skv. a-lið 1. mgr. birtast á neðsta hluta yfirborðsins á annarri hlið einingarpakkans. Þá skal upplýsingatextinn skv. b-lið 1. mgr. birtast á neðsta hluta yfirborðsins á hinni hliðinni. Þessar viðvörunarmerkingar skulu vera a.m.k. 20 millimetrar á breidd. Hliðarfletir einingarpakkana skulu vera að minnsta kosti 16 millimetrar á hæð. Ekki skal gera athugasemdir við textann, umorða eða vísa til hans á neinn hátt.
Að því er varðar lokanlega pakka með loki á hjörum, sem leiða til þess að hliðarfletirnir skiptast í tvennt þegar pakkinn er opnaður, skulu almenna viðvörunin skv. a-lið 1. mgr. og upplýsingatextinn skv. b-lið 1. mgr. birtast í heilu lagi á stærri hluta þessa skipta flatar. Almenna viðvörunin skal einnig birtast innan á efsta fletinum sem er sýnilegur þegar pakkinn er opinn. Hliðarfletirnir á þessari gerð af pökkum skulu vera a.m.k. 16 mm á hæð.
Að því er varðar vafningstóbak, sem er sett á markað í pungum, skulu almenna viðvörunin skv. a-lið 1. mgr. og upplýsingatextinn skv. b-lið 1. mgr. birtast á flötum sem tryggja að þessar viðvörunarmerkingar séu að fullu sýnilegar. Að því er varðar vafningstóbak í sívölum pökkum skal almenna viðvörunin birtast á ytra yfirborði loksins og upplýsingatextinn á innra yfirborði þess.
Bæði almenna viðvörunin og upplýsingatextinn skulu þekja 50% af flötunum sem þau eru prentuð á.
Almenna viðvörunin skv. a-lið 1. mgr. og upplýsingatextinn skv. b-lið 1. mgr. skulu:
10. gr.
Mynd- og textaviðvörunarmerkingar á tóbaksvörum til reykinga.
Á sérhverjum einingarpakka og öllum ytri umbúðum tóbaksvara til reykinga skal vera mynd- og textaviðvörunarmerking. Mynd- og textaviðvörunarmerkingar skulu:
Mynd- og textaviðvörunarmerkingarnar eru flokkaðar í samstæður sem nota skal á tilteknu ári og síðan skipt út árlega fyrir næstu samstæðu og þannig að tryggt sé að þær birtist með reglubundnum hætti.
11. gr.
Merkingar á öðrum tóbaksvörum til reykinga en sígarettum,
vafningstóbaki, vatnspíputóbaki og hituðum tóbaksvörum.
Að því er varðar aðrar tóbaksvörur til reykinga en sígarettur, vafningstóbak, vatnspíputóbak og hitaðar tóbaksvörur skal almenna viðvörunin skv. a-lið 1. mgr. 9. gr. birtast á þeim fleti einingarpakkans sem er mest áberandi og á öllum ytri umbúðum.
Textaviðvörunin skv. viðauka III skal birtast á þeim fleti einingarpakkans sem er næstmest áberandi og á öllum ytri umbúðum.
Að því er varðar einingarpakka sem er með loki á hjörum, er sá flötur sem er næstmest áberandi sá flötur sem sést þegar pakkinn er opinn. Almenna viðvörunin sem um getur í a-lið 1. mgr. 9. gr. skal þekja 30% af viðkomandi fleti einingarpakkans og allra ytri umbúða. Textaviðvörunin sem um getur í viðauka III skal þekja 40% af viðkomandi fleti einingarpakkans og allra ytri umbúða.
Ef viðvörunarmerkingar eiga að birtast á fleti sem er stærri en 150 cm² skulu þær þekja svæði sem er 45 cm².
Viðvörunarmerkingar skulu uppfylla þær kröfur sem tilgreindar eru í a- og b-lið 6. mgr. 9. gr. Textinn á viðvörunarmerkingunum skal vera samsíða aðaltextanum á fletinum sem er frátekinn fyrir þessar viðvaranir. Viðvörunarmerkingar skulu vera í svörtum ramma sem er a.m.k. 3 mm á breidd og mest 4 mm á breidd. Þessi rammi skal vera utan við yfirborðsflötinn sem er frátekinn fyrir viðvörunarmerkingarnar.
12. gr.
Merkingar á reyklausu tóbaki.
Á sérhverjum einingarpakka og öllum ytri umbúðum reyklauss tóbaks skal vera eftirfarandi viðvörunarmerking: "Þessi tóbaksvara skaðar heilsuna og er ávanabindandi."
Viðvörunarmerkingarnar, sem mælt er fyrir um í 1. mgr., skulu uppfylla þær kröfur sem tilgreindar eru í 6. mgr. 9. gr.
Textinn á viðvörunarmerkingunum skal vera samsíða aðaltextanum á fletinum sem er frátekinn fyrir þessar viðvaranir. Auk þess skal hann:
13. gr.
Útlit og lögun mynd- og textaviðvörunarmerkinga tóbaksvara til reykinga.
Ef hæð mynd- og textaviðvörunarmerkingar er meiri en 70% af breidd hennar skulu framleiðendur koma mynd- og textaviðvörunarmerkingum fyrir á hlaðsettu sniði eins og sýnt er í 1. lið í V. viðauka.
Ef hæð mynd- og textaviðvörunarmerkingar er meiri en 20% en minni en 65% af breidd hennar skulu framleiðendur koma mynd- og textaviðvörunarmerkingum fyrir með hliðsettu sniði eins og sýnt er í 2. lið V. viðauka.
Ef hæð mynd- og textaviðvörunarmerkingar er meiri en eða jöfn og 65% en minni en eða jöfn og 70% af breidd hennar geta framleiðendur valið hvort þeir nota hlaðsett eða hliðsett snið, svo fremi sem allir þættir í mynd- og textaviðvörunarmerkingunni haldast sýnilegir að fullu og bjagast ekki.
Ef notað er hlaðsett snið skal setja myndina efst í mynd- og textaviðvörunarmerkinguna með textaviðvörun og upplýsingar um aðstoð við að hætta að reykja prentaðar fyrir neðan eins og sýnt er í 1. lið viðauka V. Myndin skal ná yfir 50%, textaviðvörunin yfir 38% og upplýsingar um aðstoð við að hætta að reykja yfir 12% af yfirborðsfleti mynd- og textaviðvörunarmerkingarinnar innan við ytri svarta rammann. Ef notað er hliðsett snið skal setja myndina á vinstri helming mynd- og textaviðvörunarmerkingar með textaviðvörunina að ofan hægra megin og upplýsingarnar um aðstoð við að hætta að reykja að neðan hægra megin í viðvöruninni eins og sýnt er í 2. lið V. viðauka. Myndin skal ná yfir 50%, textaviðvörunin yfir 40% og upplýsingar um aðstoð við að hætta að reykja yfir 10% af yfirborðsfleti mynd- og textaviðvörunarmerkingarinnar innan við ytri svarta rammann.
Ef hæð mynd- og textaviðvörunarmerkingar er minni en eða jöfn og 20% af breidd hennar vegna lögunar einingarpakkans eða ytri umbúða skal mynd- og textaviðvörunarmerkingin vera á hliðsettu, sérlega breiðu sniði eins og sýnt er í 3. lið V. viðauka. Myndin skal ná yfir 35%, textaviðvörunin yfir 50% og upplýsingar um aðstoð við að hætta að reykja yfir 15% af yfirborðsfleti mynd- og textaviðvörunarmerkingarinnar innan við ytri svarta rammann.
14. gr.
Hönnun mynd- og textaviðvörunarmerkingar tóbaksvara til reykinga.
Mynd- og textaviðvörunarmerkingin skal prentuð í fjögurra lita CMYK-litaskipan. Allir þættir í svörtu skulu vera C0, M0, Y0 og K100 og þættir í hlýjum gulum lit skulu vera C0, M10, Y100 og K0.
Mynd- og textaviðvörunarmerkingin skal endurgerð í upplausn sem er að lágmarki 300 punktar á tommu þegar hún er prentuð í raunstærð.
Prenta skal textaviðvörunina með hvítu á svartan grunn.
Upplýsingar um aðstoð við að hætta að reykja skal prenta með svörtu á bakgrunn í hlýjum gulum lit eins og sýnt er í viðauka V.
Ef notað er hliðsett snið, hlaðsett víxlað snið eða hliðsett, sérlega breitt snið skal prenta 1 millimetra svartan ramma milli upplýsinganna um aðstoð við að hætta að reykja og myndarinnar inni í upplýsingareitnum um aðstoð við að hætta að reykja.
Framleiðendur eða innflytjendur skulu tryggja, að því er varðar myndina, að:
Framleiðendur skulu tryggja að:
Þrátt fyrir e- og f-lið 7. mgr. er framleiðendum eða innflytjendum tóbaksvara til reykinga, annarra en sígarettna, vafningstóbaks og vatnspíputóbaks, heimilt að minnka leturstærð eða línubil í textaviðvörun og upplýsingum um aðstoð við að hætta að reykja ef slíkt er óhjákvæmilegt, að því tilskildu að allir þættir í mynd- og textaviðvörunarmerkingu haldist að fullu sýnilegir.
15. gr.
Sérreglur um tiltekna einingarpakka tóbaksvara til reykinga með flettiloki.
Þrátt fyrir 4. mgr. 13. gr. skulu eftirfarandi reglur gilda um mynd- og textaviðvörunarmerkingar sem setja skal framan á einingarpakka með flettiloki:
Framleiðendur skulu tryggja að enginn af þáttunum þremur, sem eru í mynd- og textaviðvörunarmerkingunni, rofni þegar einingarpakkinn er opnaður.
16. gr.
Viðvörun og upplýsingatexti á vafningstóbaki sem sett er á markað í pungum.
Að því er varðar vafningstóbak í rétthyrndum bréfum með loka sem nær yfir opið skulu almenna viðvörunin og upplýsingatextinn prentuð á yfirborðsfletina tvo, sem verða sýnilegir þegar einingarpakkinn er opnaður að fullu, eins og sýnt er í 1. og 2. lið VI. viðauka. Setja skal almennu viðvörunina og upplýsingatextann við efstu brún og skulu þau þekja 50% þess yfirborðsflatar sem hvort um sig er prentað á eins og sýnt er í 1. og 2. lið VI. viðauka. Prenta skal almennu viðvörunina á efsta flötinn.
Að því er varðar vafningstóbak í pungum sem geta staðið uppréttir skal staðsetja almennu viðvörunina og upplýsingatextann á yfirborðsfletina á botni pungsins, sem getur staðið uppréttur, sem verða sýnilegir þegar pungurinn er lagður á bakhliðina ("botnflötur einingarpakkans") eins og sýnt er í 4. lið IV. viðauka. Prenta skal almennu viðvörunina á yfirborðsflötinn, ofan við brotið í miðjunni á botnfleti einingarpakkans, og upplýsingatextann á flötinn neðan við brotið. Almenna viðvörunin og upplýsingatextinn eiga að þekja 50% þess yfirborðsflatar sem hvort um sig er prentað á. Reikna skal yfirborðsfletina út með því að nota málin á þeim eftir að brúnunum hefur verið lokað.
17. gr.
Kynning á vöru.
Óheimilt er að hafa á einingarpökkum og öllum ytri umbúðum og á tóbaksvörunni sjálfri merkingar, hvort sem það er texti, heiti, vörumerki, myndir og myndræn eða annars konar tákn, sem:
18. gr.
Jurtavörur til reykinga.
Á sérhverjum einingarpakka og öllum ytri umbúðum jurtavara til reykinga skal vera eftirfarandi viðvörunarmerking:
Viðvörunarmerkingin skal prentuð framan og aftan á ytra yfirborð einingarpakkans og á allar ytri umbúðir.
Viðvörunarmerkingin skal vera í samræmi við þær kröfur sem fram koma í 6. mgr. 9. gr. Hún skal þekja 30% af samsvarandi yfirborði einingarpakkans og allra ytri umbúða.
Einingarpakkar og allar ytri umbúðir jurtavara til reykinga skulu ekki innihalda þætti eða einkenni sem sett eru fram í a-, b- og d-lið 17. gr. og skulu ekki gefa til kynna að varan sé laus við aukefni eða bragðefni.
19. gr.
Lögun einingarpakka.
Sígarettupakkar skulu vera teningslaga og innihalda að minnsta kosti 20 sígarettur í pakka. Pakkarnir geta verið úr pappa eða mjúku efni og skulu ekki opnaðir á þann hátt að unnt sé að loka þeim aftur eða innsigla þá, nema um sé að ræða pakka með flettiloki eða öskjur með hjörum á lokinu. Hvað pakka með flettiloki og loki með hjörum varðar skal lokið einungis vera á hjörum á bakhlið pakkans.
Einingarpakkar sem innihalda vafningstóbak skulu vera teningslaga, sívalir eða í formi pungs. Þeir skulu jafnframt innihalda tóbak sem vegur að minnsta kosti 30 g.
20. gr.
Einsleitar umbúðir tóbaksvara.
Allt ytra yfirborð einingarpakka og ytri umbúða tóbaksvara skal vera í litnum matt Pantone 448 C.
Allt innra yfirborð einingarpakka og ytri umbúða tóbaksvara til reykinga skal vera í litnum matt hvítt eða matt Pantone 448 C.
Allt innra yfirborð einingarpakka og ytri umbúða reyklauss tóbaks skal vera í litnum matt hvítt eða vera í náttúrulegum lit viðkomandi umbúða.
Ef til staðar er fóður í einingarpakka skal það vera í litnum Pantone 448 C, hvítt eða silfurgrátt. Fóðrið má ekki vera með bókstöfum, tölustöfum, táknum, myndum, merkjum eða þess háttar. Fóðrið má ekki gata þannig að það myndi mynd, tákn, texta, merki eða þess háttar.
Yfirborð einstakra pakkninga og ytri umbúða skal vera flatt og slétt og má ekki innihalda óreglulega þætti, svo sem merkingar, áferð, innskot eða upphækkanir.
Heiti tóbaksvöru og undirtegundar skal vera í litnum matt hvítt eða matt svart. Óheimilt er að merkja tóbaksvöru með táknum eða myndum sem hafa m.a. skírskotun í framleiðanda, heiti eða tegund.
21. gr.
Öryggisþáttur.
Allir einingarpakkar sem innihalda tóbaksvörur og settir eru á markað hér á landi skulu vera merktir með öryggisþætti sem samanstendur af sýnilegum og ósýnilegum þáttum. Öryggisþátturinn skal prentaður þannig eða festur að ekki er hægt að fjarlægja hann, hann skal vera óafmáanlegur og ekki falinn eða rofinn á neinn hátt.
Öryggisþátturinn skal uppfylla tæknistaðla og virkni skv. a-lið 1. mgr. 27. gr. telst vera öryggisþáttur og vera þannig gerður að ekki sé hægt að eiga við hann og skal hann samsettur úr a.m.k. 5 gerðum af sannvottunarþáttum þar sem minnst:
Sannvottunarþættir mega innihalda hvaða gerð sem er af sýnilegu, hálfsýnilegu og ósýnilegu sannvottunarþáttunum sem settir eru fram í viðauka VII.
V. KAFLI
Viðurlög.
22. gr.
Viðurlög.
Um brot á reglugerð þessari fer skv. VI. kafla laga um tóbaksvarnir, nr. 6/2002.
VI. KAFLI
Innleiðing og gildistaka EES-gerða.
23. gr.
Reglugerð þessi er sett til innleiðingar og fyllingar þeirra EES-gerða sem gilda um samræmingu ákvæða í lögum og stjórnsýslufyrirmælum aðildarríkjanna varðandi framleiðslu, kynningu og sölu á tóbaki og tengdum vörum og eru tilgreindar í kafla þessum.
24. gr.
Innleiðing EES-gerða um losun, mæliaðferðir og innihaldsefni.
Með reglugerð þessari eru innleiddar eftirtaldar gerðir sem settar hafa verið í tengslum við upplýsinga- og skýrslugjöf framleiðenda og innflytjenda tóbaksvara um innihaldsefni og losun frá tóbaksvörum og skulu þær öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af reglugerð þessari, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans:
25. gr.
Innleiðing EES-gerða er varða merkingar og umbúðir.
Með reglugerð þessari eru innleiddar eftirtaldar gerðir sem settar hafa verið í tengslum við merkingar og umbúðir tóbaksvara og skulu þær öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af reglugerð þessari, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans:
26. gr.
Innleiðing EES-gerða er varða öryggisþætti.
Með reglugerð þessari eru innleiddar eftirtaldar gerðir sem settar hafa verið í tengslum við rekjanleika, skráningu og öryggisþátt tóbaksvara og skulu þær öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af reglugerð þessari, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans:
VII. KAFLI
Lagastoð og gildistaka.
27. gr.
Ákvæði reglugerðar þessarar eru í samræmi við tilskipun 2014/40/ESB um samræmingu ákvæða í lögum, reglugerðum og stjórnsýslufyrirmælum aðildarríkjanna varðandi framleiðslu, kynningu og sölu á tóbaksvörum og þeirra gerða sem taldar eru upp í 24.-26. gr. reglugerðar þessarar.
Reglugerðin er sett með stoð í 6. gr., 6. gr. a, 6. gr. c, 6. gr. f og 6. gr. g laga um tóbaksvarnir, nr. 6/2002, með síðari breytingum, og öðlast gildi 1. maí 2025. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð um mynd- og textaviðvaranir á tóbaki og mælingar á hámarki skaðlegra tóbaksefna, nr. 790/2011. Þó öðlast ákvæði 20. gr. ekki gildi fyrr en 24 mánuðum frá gildistöku reglugerðarinnar.
Ákvæði til bráðabirgða.
Tóbaksvörur sem merktar eru í samræmi við reglugerð um viðvörunarmerkingar á tóbaki og mælingar og hámark skaðlegra tóbaksefna, nr. 790/2011, má flytja til landsins næstu 12 mánuði frá gildistöku reglugerðar þessarar og hafa í sölu í allt að 18 mánuði frá gildistöku reglugerðar þessarar.
Heilbrigðisráðuneytinu, 25. október 2024.
Willum Þór Þórsson.
Ásthildur Knútsdóttir.
VIÐAUKAR
(sjá PDF-skjal)