Prentað þann 8. apríl 2025
1247/2019
Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 1238/2018 um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í kostnaði sjúkratryggðra vegna dvalar í hjúkrunarrýmum og dvalarrýmum á stofnunum sem ekki eru á föstum fjárlögum árið 2019 og sem eru án samnings við Sjúkratryggingar Íslands.
1. gr.
Í stað dagsetningarinnar "31. desember 2019" í 3. gr. kemur: 31. desember 2020.
2. gr.
Í stað dagsetningarinnar "31. desember 2019" í 8. gr. kemur: 31. desember 2020.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 2. mgr. 22. gr., 24. gr., 2. mgr. 38. gr. og 55. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar, með síðari breytingum, sbr. 1. mgr. 21. gr. og 29. gr. laga nr. 125/1999, um málefni aldraðra, með síðari breytingum öðlast þegar gildi.
Heilbrigðisráðuneytinu, 18. desember 2019.
Svandís Svavarsdóttir.
Elsa B. Friðfinnsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.