1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein svohljóðandi:
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/27 frá 27. september 2021 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 236/2012 að því er varðar breytingu á viðeigandi viðmiðunarmörkum fyrir tilkynninguna um verulegar hreinar skortstöður í hlutabréfum, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 146/2022 frá 29. apríl 2022, skal gilda hér á landi með þeim aðlögunum sem leiðir af bókun 1 um altæka aðlögun við EES-samninginn, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993, þar sem bókunin er lögfest. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 70 frá 27. október 2022, bls. 314-315.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í d-lið 1. mgr. 13. gr. laga um skortsölu og skuldatryggingar, nr. 55/2017, öðlast þegar gildi.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 6. nóvember 2024.
F. h. r.
Gunnlaugur Helgason.
Eggert Páll Ólason.