1. gr.
Í stað greinarheitisins "Rétthafar stuðnings." á eftir 19. gr. reglugerðarinnar kemur: Rétthafar aðlögunarstuðnings.
2. gr.
1. mgr. 19. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
Framleiðendur sem uppfylla skilyrði 3. gr. og hafa byrjað lífræna aðlögun í landbúnaði undir eftirliti faggildrar vottunarstofu og í samræmi við gildandi reglugerð um lífræna framleiðslu og merkingu lífrænt ræktaðra vara, geta sótt um aðlögunarstuðning vegna lífrænna framleiðsluhátta.
3. gr.
Í stað greinarheitisins "Auglýsing og umsókn." á eftir 20. gr. reglugerðarinnar kemur: Auglýsing og umsókn aðlögunarstuðnings.
4. gr.
Í stað greinarheitisins "Hámarksframlög." á eftir 21. gr. reglugerðarinnar kemur: Hámarksframlög aðlögunarstuðnings.
5. gr.
Í stað greinarheitisins "Eftirlit og úttektir." á eftir 22. gr. reglugerðarinnar kemur: Eftirlit og úttektir vegna aðlögunarstuðnings.
6. gr.
1. mgr. 22. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
Heimilt er að kalla eftir frekari upplýsingum frá framleiðanda sé talin þörf á því til að meta umsókn um aðlögunarstuðning.
7. gr.
Við reglugerðina bætist ný grein, 22. gr. a., sem orðast svo ásamt fyrirsögn:
Rétthafar sérstaks tækjastyrks.
Framleiðendur sem uppfylla skilyrði 3. gr. og hafa hlotið lífræna vottun í landbúnaði undir eftirliti faggildrar vottunarstofu í samræmi við gildandi reglugerð um lífræna framleiðslu og merkingu lífrænt ræktaðra vara, geta sótt um sérstaka tækjastyrki til kaupa á sérhæfðum búnaði sem stuðlar að aukinni framlegð í lífrænum landbúnaði og/eða bættri nýtingu lífræns áburðar, svo sem róbótum, niðurfellingarbúnaði til áburðardreifingar, tækjum til safnhaugagerðar, tækni til nákvæmnislandbúnaðar, illgresishreinsa og annarra tækja sem stuðla að framangreindum markmiðum.
Skilyrði fyrir stuðningi eru fullnægjandi skil á skýrsluhaldi í þeim búgreinum sem við eiga hverju sinni.
Heildarframlög til sérstakra tækjastyrkja skv. 1. mgr. verða að hámarki 30 milljónir króna sem ráðstafa má til ársloka 2025.
8. gr.
Við reglugerðina bætist ný grein, 22. gr. b., sem orðast svo ásamt fyrirsögn:
Auglýsing og umsókn sérstaks tækjastyrks.
Ráðuneytið auglýsir eftir umsóknum. Umsóknum skal skila inn í rafrænt umsóknarkerfi og skulu eftirfarandi upplýsingar koma fram:
Fylgiskjöl með umsókn:
9. gr.
Við reglugerðina bætist ný grein, 22. gr. c., sem orðast svo ásamt fyrirsögn:
Hámarksframlög sérstaks tækjastyrks.
Ráðuneytið annast úthlutun sérstaks tækjastyrks. Stuðningur við hvern framleiðanda getur að hámarki numið 50% af kostnaði við tækjakaup. Ef fjármunir nægja ekki til hámarksstuðnings skerðast framlög hlutfallslega vegna allra samþykktra umsókna.
10. gr.
Við reglugerðina bætist ný grein, 22. gr. d., sem orðast svo ásamt fyrirsögn:
Mat og afgreiðsla umsókna vegna sérstaks tækjastyrks.
Ráðuneytinu er heimilt að óska eftir umsögnum fagráðs í lífrænni ræktun við mat á umsóknum.
Heimilt er að kalla eftir frekari upplýsingum frá framleiðanda sé talin þörf á því til að meta umsókn.
Við úthlutun styrks skal greiða 50% styrkfjárhæðar og 50% við afhendingu kvittunar vegna tækjakaupa. Liggi kvittun fyrir við úthlutun skal greiða 100% styrkfjárhæðar. Framleiðandi skal hafa hlotið lífræna vottun fyrir dagsetningu kvittunar. Tækjakaup sem fóru fram meira en 24 mánuðum fyrir dagsetningu umsóknar eru ekki styrkhæf.
Afhendi framleiðandi ekki ráðuneytinu kvittun fyrir tækjakaupum innan 6 mánaða frá útgreiðslu 50% styrks er heimilt að krefjast endurgreiðslu á greiddum stuðningi, ásamt kostnaði við innheimtu.
11. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í búnaðarlögum nr. 70/1998 og búvörulögum nr. 99/1993. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 16. október 2024.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir.
Ása Þórhildur Þórðardóttir.