Dómsmálaráðuneyti

1200/2024

Reglugerð um breytingu á reglugerð um skiptingu kostnaðar milli ríkis og sveitarfélaga í kosningum, nr. 442/2024.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. reglugerðarinnar:

  1. Á eftir 1. málsl. 2. mgr. kemur nýr málsliður, 2. málsl., sem orðast svo: Við alþingis­kosningar 2024 skal ríkissjóður greiða hverju sveitarfélagi 940 kr. fyrir hvern kjósanda á kjörskrá í viðkomandi sveitarfélagi og 699.200 kr. fyrir hvern kjörstað.
  2. Á eftir orðinu "forsetakosningum" í 3. mgr. kemur: og alþingiskosningum.

 

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 139. gr. kosningalaga, nr. 112/2021, öðlast þegar gildi. Ákvæði 7. gr. reglugerðarinnar skal tekið til endurskoðunar fyrir árslok 2025.

 

Dómsmálaráðuneytinu, 25. október 2024.

 

F. h. r.

Haukur Guðmundsson.

Bryndís Helgadóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica