Prentað þann 7. apríl 2025
1190/2008
Reglugerð um fjárhæðir frítekjumarka (tekjumarka) almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar.
1. gr.
Frítekjumörk (tekjumörk) bóta samkvæmt lögum nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2009:
frítekjumark kr. | efra tekjumark kr. | |
Vegna fjármagnstekna (allar bætur) | 98.640 | |
Tekjutrygging vegna eigin atvinnutekna | ||
skv. 2. málsl. b-liðar 2. mgr. 16. gr. | 480.000 | |
Tekjutrygging vegna eigin atvinnutekna | ||
skv. ákvæði til bráðabirgða | 1.315.200 | |
Ellilífeyrir skv. 2. mgr. 17. gr. | 2.575.220 | 3.981.332 |
Örorkulífeyrir skv. 5. mgr. 18. gr. | 2.575.220 | 3.981.332 |
Örorkustyrkur skv. 1. mgr. 19. gr. | 2.575.220 | 3.961.268 |
Örorkustyrkur skv. 2. mgr. 19. gr. | 2.575.220 | 3.981.332 |
Aldurstengd örorkuuppbót (100%) | ||
skv. 1. mgr. 21. gr. | 2.575.220 | 3.981.332 |
Tekjutrygging vegna lífeyrissjóðstekna skv. 3. málsl. 2. mgr. 22. gr. | 120.000 | |
Tekjutrygging vegna lífeyrissjóðstekna | ||
skv. 3. málsl. 3. mgr. 22. gr. | 328.800 | |
Vasapeningar skv. 2. og 3. málsl. 8. mgr. 48. gr. | 773.446 | |
Vasapeningar vegna vinnu á stofnun | ||
skv. 5. og 6. málsl. 8. mgr. 48. gr. | 812.774 |
2. gr.
Frítekjumörk (tekjumörk) bóta samkvæmt lögum nr. 99/2007 um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2009:
frítekjumark kr. | efra tekjumark kr. | |
Endurhæfingarlífeyrir skv. 1. mgr. 7. gr. | 2.575.220 | 3.981.332 |
3. gr.
Tekjumörk bóta samkvæmt reglugerð nr. 595/1997 um heimilisuppbót og frekari uppbætur samkvæmt lögum um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, skulu vera sem hér segir fyrir hvern mánuð ársins 2009:
efra tekjumark kr. | ||
Frekari uppbætur skv. 1. mgr. 9. gr. | 198.650 |
4. gr.
Frítekjumark: Með frítekjumarki er í reglugerð þessari átt við fjárhæð tekna á ári sem ekki skerðir bætur.
Efra tekjumark: Með efra tekjumarki er í reglugerð þessari átt við fjárhæð tekna á ári sem veldur því að bætur falla niður að fullu.
5. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 70. gr., sbr. 69. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, og 14. gr. laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2009. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1225/2007 um hækkun frítekjumarka (tekjumarka) almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar, með síðari breytingum.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.