1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast tvær nýjar málsgreinar svohljóðandi:
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/732 frá 26. janúar 2021 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) nr. 667/2014 að því er varðar inntak skýrslunnar sem rannsakandinn á að senda til Evrópsku verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunarinnar, réttinn til að láta álit sitt í ljós að því er varðar tímabundnar ákvarðanir og framlagningu fjársekta og févíta skal gilda hér á landi með þeim aðlögunum sem leiðir af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 252/2022 frá 23. september 2022 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 31 frá 20. apríl 2023, bls. 47. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 76 frá 17. nóvember 2022, bls. 22-24.
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1456 frá 2. júní 2021 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 648/2012 með því að tilgreina skilyrði þess að viðskiptaskilmálar fyrir stöðustofnunarþjónustu fyrir OTC-afleiður teljist sanngjarnir, eðlilegir, án mismununar og gagnsæir skal gilda hér á landi með þeim aðlögunum sem leiðir af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 332/2022 frá 9. desember 2022 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 48 frá 29. júní 2023, bls. 70. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 37 frá 11. maí 2023, bls. 397-402.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 2. og 4. tölul. 1. mgr. 15. gr. laga nr. 15/2018, um afleiðuviðskipti, miðlæga mótaðila og afleiðuviðskiptaskrár, og öðlast þegar gildi.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 22. október 2024.
F. h. r.
Guðrún Þorleifsdóttir.
Eggert Páll Ólason.