1. gr.
Reglugerð þessi gildir um úthlutun matvælaráðherra á tollkvótum samkvæmt samningi milli Íslands og Evrópusambandsins um viðskipti með landbúnaðarvörur, sem tók gildi 19. október 2017 en kom til framkvæmda 1. maí 2018, á grundvelli 19. gr. EES-samningsins og með vísun til 5. mgr. 12. gr. tollalaga, nr. 88/2005.
Tollkvótar samkvæmt reglugerð þessari taka til vara sem upprunnar eru í ríkjum Evrópusambandsins, sbr. bókun 4 við EES-samninginn.
2. gr.
Ákvæði eftirfarandi tafla gilda um vörumagn, tímabil innflutnings, verð- og magntoll.
a) Fyrir tímabilið 1. janúar 2025 til 30. júní 2025:
Vöruliður: | Vara | Tímabil | Vörumagn | Verðtollur | Magntollur |
kg | % | kr./kg | |||
0201/0202 | Kjöt af dýrum af nautgripakyni, nýtt, kælt eða fryst | 01.01. - 30.06.25 | 348.000 | 0 | 0 |
0203 | Svínakjöt, nýtt, kælt eða fryst | 01.01. - 30.06.25 | 350.000 | 0 | 0 |
0207 | Kjöt af alifuglum, nýtt, kælt eða fryst | 01.01. - 30.06.25 | 428.000 | 0 | 0 |
Úr 0207 | Kjöt af alifuglum, nýtt, kælt eða fryst, lífrænt ræktað/lausagöngu | 01.01. - 30.06.25 | 100.000 | 0 | 0 |
0210 | Kjöt og ætir hlutar af dýrum, saltað, í saltlegi, þurrkað eða reykt; ætt mjöl, einnig finmalað, úr kjöti eða hlutum af dýrum | 01.01. - 30.06.25 | 50.000 | 0 | 0 |
Úr 0406 | Ostur og ystingur (*) | 01.01. - 30.06.25 | 115.000 | 0 | 0 |
0406 | Ostur og ystingur | 01.01. - 30.06.25 | 190.000 | 0 | 0 |
1601 | Pylsur og þess háttar vörur úr kjöti, hlutum af dýrum, blóði eða skordýrum; matvæli gerð aðallega úr þessum vörum | 01.01. - 30.06.25 | 125.000 | 0 | 0 |
1602 | Annað kjöt, hlutar af dýrum, blóð eða skordýr, unnið eða varið skemmdum | 01.01. - 30.06.25 | 200.000 | 0 | 0 |
(*) Skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (ESB) nr. 1151/2012 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbúnaðarafurða og matvæla.
b) Fyrir tímabilið 1. júlí 2025 til 31. desember 2025:
Vöruliður: | Vara | Tímabil | Vörumagn | Verðtollur | Magntollur |
kg | % | kr./kg | |||
0201/0202 | Kjöt af dýrum af nautgripakyni, nýtt, kælt eða fryst | 01.07. - 31.12.25 | 348.000 | 0 | 0 |
0203 | Svínakjöt, nýtt, kælt eða fryst | 01.07. - 31.12.25 | 350.000 | 0 | 0 |
0207 | Kjöt af alifuglum, nýtt, kælt eða fryst | 01.07. - 31.12.25 | 428.000 | 0 | 0 |
Úr 0207 | Kjöt af alifuglum, nýtt, kælt eða fryst, lífrænt ræktað/lausagöngu | 01.07. - 31.12.25 | 100.000 | 0 | 0 |
0210 | Kjöt og ætir hlutar af dýrum, saltað, í saltlegi, þurrkað eða reykt; ætt mjöl, einnig finmalað, úr kjöti eða hlutum af dýrum | 01.07. - 31.12.25 | 50.000 | 0 | 0 |
Úr 0406 | Ostur og ystingur (*) | 01.07. - 31.12.25 | 115.000 | 0 | 0 |
0406 | Ostur og ystingur | 01.07. - 31.12.25 | 190.000 | 0 | 0 |
1601 | Pylsur og þess háttar vörur úr kjöti, hlutum af dýrum, blóði eða skordýrum; matvæli gerð aðallega úr þessum vörum | 01.07. - 31.12.25 | 125.000 | 0 | 0 |
1602 | Annað kjöt, hlutar af dýrum, blóð eða skordýr, unnið eða varið skemmdum | 01.07. - 31.12.25 | 200.000 | 0 | 0 |
(*) Skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (ESB) nr. 1151/2012 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbúnaðarafurða og matvæla.
3. gr.
Tollkvótum er úthlutað samkvæmt ákvæðum búvörulaga nr. 99/1993. Tollkvótar eru auglýstir á vefsíðu matvælaráðuneytisins þar sem tilgreindir eru skilmálar og fram koma frekari upplýsingar um framkvæmd úthlutunarinnar.
4. gr.
Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Til þess að tilboð teljist gilt skal senda ráðuneytinu staðfest afrit af ábyrgðaryfirlýsingu. Skal ábyrgðaryfirlýsingin berast frá banka, sparisjóði eða vátryggingafélagi á tölvupóstfang ráðuneytisins mar@mar.is. Í ábyrgðaryfirlýsingunni skal koma fram að viðkomandi ábyrgðarveitandi tryggi að tilboðsgjafi geti staðið við tilboð sitt. Einnig er heimilt í stað ábyrgðaryfirlýsingar að greiða andvirði tollkvóta á reikning fjársýslunnar og senda kvittun til ráðuneytisins.
Umsóknar- og tilboðsferli vegna úthlutunar tollkvótans fer fram með rafrænum hætti á vefkerfinu tollkvoti.is.
Tilboðsgjafi sá er fær úthlutað tollkvóta skal leysa hann til sín með greiðslu andvirðis hans innan sjö daga frá dagsetningu tilkynningar um niðurstöðu útboðs. Úthlutun er ekki framseljanleg.
5. gr.
Berist umsóknir um meira magn innflutnings vara úr vörulið ex 0406(*) en auglýstum tollkvóta nemur, skal ráðherra úthluta tollkvóta vegna vöruliðarins eftir hlutkesti. Hver tilboðsgjafi skal þó að hámarki hljóta 15% af heildarmagni auglýsts tollkvóta ef viðkomandi vara er skráð í samræmi við reglur um vernd afurðarheita sem vísa til uppruna, landsvæðis eða hefðbundinnar sérstöðu.
6. gr.
Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 1250/2019 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.
7. gr.
Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 65. og 82. gr. búvörulaga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.
8. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 65. gr. B búvörulaga nr. 99/1993.
Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til og með 31. desember 2025. Við gildistöku hennar fellur úr gildi reglugerð nr. 1176/2023 um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá ríkjum Evrópusambandsins.
Matvælaráðuneytinu, 15. október 2024.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir.
Elísabet Anna Jónsdóttir.