Prentað þann 7. apríl 2025
1166/2021
Reglugerð um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um starfsemi lánshæfismatsfyrirtækja.
1. gr. Gildissvið.
Reglugerð þessi gildir um starfsemi lánshæfismatsfyrirtækja sem starfa samkvæmt lögum nr. 50/2017 um lánshæfismatsfyrirtæki.
2. gr. Innleiðing reglugerða.
Eftirtaldar reglugerðir Evrópusambandsins um starfsemi lánshæfismatsfyrirtækja skulu gilda á Íslandi með þeirri aðlögun sem leiðir af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 189/2019 frá 10. júlí 2019:
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1 frá 30. september 2014 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1060/2009 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla fyrir reglubundna skýrslugjöf um gjöld sem lánshæfismatsfyrirtæki innheimta innan ramma viðvarandi eftirlits Evrópsku verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunarinnar, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 55 frá 26. ágúst 2021, bls. 17-39.
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2015/2/ESB frá 30. september 2014 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1060/2009 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla um framsetningu upplýsinganna sem lánshæfismatsfyrirtæki gera aðgengileg Evrópsku verðbréfamarkaðseftirlitsstofnuninni, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 55 frá 26. ágúst 2021, bls. 40-72.
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/3 frá 30. september 2014 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1060/2009 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla um birtingarkröfur fyrir samsetta fjármálagerninga, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 55 frá 26. ágúst 2021, bls. 73-135.
3. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 1. mgr. 8. gr. laga nr. 50/2017, um lánshæfismatsfyrirtæki, og öðlast þegar gildi.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 30. september 2021.
F. h. r.
Guðrún Þorleifsdóttir.
Erna Hjaltested.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.