Matvælaráðuneyti

1161/2024

Reglugerð um (4.) breytingu á reglugerð nr. 237/2023 um gildistöku framkvæmdarreglna framkvæmdastjórnarinnar um vernd heita á víni skv. 99. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1308/2013.

1. gr.

Við 2. gr. reglugerðarinnar bætist einn nýr töluliður, 30. tölul., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/698 frá 19. febrúar 2024 um að veita heitinu "Beira Atlântico" (VLM) vernd skv. 99. gr. reglugerðar Evrópu­þingsins og ráðsins (ESB) nr. 1308/2013. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 144/2024, frá 12. júní 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 65, frá 29. ágúst 2024, bls. 495.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 31. gr. a. laga nr. 93/1995 um matvæli.

 

Matvælaráðuneytinu, 4. október 2024.

 

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir.

Emilía Madeleine Heenen.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica