114/2024
Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 966/2014 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1321/2013 um skrá Sambandsins yfir leyfð reykbragðefni á forstigi framleiðslu, til notkunar sem slík í eða á matvæli og/eða til framleiðslu á afleiddum reykbragðefnum.
1. gr.
1. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirtaldar ESB-gerðir gildi hér á landi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1321/2013 frá 10. desember 2013 um skrá Sambandsins yfir leyfð reykbragðefni á forstigi framleiðslu, til notkunar sem slík í eða á matvæli og/eða til framleiðslu á afleiddum reykbragðefnum. Reglugerðin var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 176/2014, frá 26. september 2014. Reglugerðin birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 64, 30. október 2014, bls. 247.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/502 frá 29. mars 2022 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 1321/2013 að því er varðar nafn leyfishafa fyrir reykbragðefnið "Scansmoke PB 1110" á forstigi framleiðslu. Reglugerðin var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 236/2022, frá 23. september 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 72, 3. nóvember 2022, bls. 172.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/952 frá 12. maí 2023 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 1321/2013 að því er varðar nafn leyfishafa fyrir reykbragðefnið "TradismokeTM A MAX" á forstigi framleiðslu (einkvæmur kóði SF-007). Reglugerðin var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 224/2023, frá 22. september 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 83, 16. nóvember 2023, bls. 180.
2. gr.
Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.
3. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 15. janúar 2024.
Svandís Svavarsdóttir.