Prentað þann 22. jan. 2025
1124/2014
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 870/2007 um flugleiðsögu í samevrópska loftrýminu.
1. gr.
Eftirfarandi breyting verður á 1. gr. reglugerðarinnar:
Síðari málsliður 1. mgr. fellur niður.
2. gr.
Hvar sem orðið "Flugmálastjórn" eða orðin "Flugmálastjórn Íslands", í hvers konar beygingarfalli, koma fyrir í reglugerðinni, kemur í viðeigandi beygingarfalli: Samgöngustofa.
Hvar sem orðið "samgönguráðuneyti" í hvers konar beygingarfalli, kemur fyrir í reglugerðinni, kemur í viðeigandi beygingarfalli: innanríkisráðuneyti.
3. gr.
3. gr. reglugerðarinnar fellur brott.
4. gr.
Heiti II. kafla reglugerðarinnar verður svohljóðandi: Skipulag loftrýmisumdæma, eftirlit o.fl.
5. gr.
Á eftir 4. gr. kemur ný grein, 4. gr. a, svohljóðandi:
Áætlun um frammistöðu og markmið.
Samgöngustofa skal gera drög að frammistöðuáætlun í samráði við veitendur flugleiðsöguþjónustu, loftrýmisnotendur, rekstraraðila flugvalla og samræmingaraðila flugvalla. Áætlunin skal staðfest af ráðherra. Áætlunin skal fela í sér landsbundin markmið og skal tryggja samræmi við svæðisbundin frammistöðumarkmið á ICAO NAT svæðinu.
Áætlunin skal einnig fela í sér viðeigandi hvatakerfi.
6. gr.
Orðin "í innra bókhaldi sínu" í 2. mgr. 10. gr. reglugerðarinnar falla brott.
7. gr.
12. gr. orðist svo ásamt fyrirsögn:
Gjaldtökukerfi.
Í samræmi við meginreglur 15. og 16. gr. þjónustureglugerðarinnar skal gjaldtökukerfi fyrir flugleiðsöguþjónustu stuðla að auknu gagnsæi í ákvörðunum, álagningu og gjaldtöku af hálfu loftrýmisnotenda og stuðla að kostnaðarhagkvæmni við veitingu flugleiðsöguþjónustu og skilvirkni flugs en samtímis að viðhalda hámarksöryggisstigi. Þetta kerfi skal vera í samræmi við 15. gr. Chicago-samningsins frá 1944 og leiðargjaldakerfi Evrópustofnunar um öryggi í flugleiðsögu eða við samninginn um sameiginlega greiðslu kostnaðar af tiltekinni flugleiðsöguþjónustu á Íslandi, eftir því sem við á.
8. gr.
Í stað orðsins "flugvalla" í 15. gr. kemur: rekstraraðila flugvalla.
9. gr.
16. gr. orðist svo ásamt fyrirsögn:
Grunnkröfur.
Evrópska netið fyrir rekstrarstjórnun flugumferðar (EATMN), eins og það er skilgreint i 1. viðauka rekstrarsamhæfisreglugerðarinnar, kerfi þess, kerfishlutar og tilheyrandi verklagsreglur skulu uppfylla grunnkröfurnar sem settar eru fram í II. viðauka við rekstrarsamhæfisreglugerðina.
10. gr.
Í stað 24. gr. kemur nýr texti sem orðast svo, með fyrirsögn:
Innleiðing.
Með reglugerð þessari öðlast gildi eftirtaldar reglugerðir Evrópuþingsins og ráðsins með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins og bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:
- Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 549/2004 frá 10. mars 2004 um setningu rammaákvæða um að koma á samevrópsku flugumferðarsvæði (rammareglugerðin), sem er meðfylgjandi merkt fylgiskjal II, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 67/2006 sem er meðfylgjandi merkt fylgiskjal I;
- Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 550/2004 frá 10. mars 2004 um að veita þjónustu á sviði flugleiðsögu á samevrópska flugumferðarsvæðinu (þjónustureglugerðin), sem er meðfylgjandi merkt fylgiskjal III, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 67/2006 sem er meðfylgjandi merkt fylgiskjal I;
- Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 551/2004 frá 10. mars 2004 um skipulag og notkun loftrýmis á samevrópska flugumferðarsvæðinu (loftrýmisreglugerðin), sem er meðfylgjandi merkt fylgiskjal I, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 67/2006 sem er meðfylgjandi merkt fylgiskjal I;
- Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 552/2004 frá 10. mars 2004 um rekstrarsamhæfi evrópska netsins fyrir rekstrarstjórnun flugumferðar (rekstrarsamhæfisreglugerðin) sem er meðfylgjandi og er merkt fylgiskjal V, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 67/2006 sem er meðfylgjandi merkt fylgiskjal I;
- Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1070/2009 frá 21. október 2009 um breytingu á reglugerðum (EB) nr. 549/2004, (EB) nr. 550/2004, (EB) nr. 551/2004 og (EB) nr. 552/2004 til að bæta frammistöðu og sjálfbærni evrópska flugkerfisins, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 228 frá 13. desember 2013. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 4 frá 23. janúar 2014, bls. 558;
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 176/2011 frá 24. febrúar 2011 um upplýsingar sem á að leggja fram áður en starfrænu loftrýmisumdæmi er komið á fót eða því breytt, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 92/2013 frá 3. maí 2013. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28 frá 16. maí 2013, bls. 354;
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1206/2011 frá 22. nóvember 2011 um kröfur um auðkenningu loftfars í tengslum við kögun í samevrópska loftrýminu, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 93/2013 frá 3. maí 2013. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 37 frá 27. júní 2013.
11. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 57. gr. a, sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast gildi 1. janúar 2015.
Innanríkisráðuneytinu, 18. desember 2014.
Ólöf Nordal.
Ragnhildur Hjaltadóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.