1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. reglugerðarinnar:
a. Í stað "504.000 kr." í 6. mgr. kemur: 518.600 kr.
b. Í stað "70.543 kr." í 7. mgr. kemur: 72.589 kr.
c. Í stað "97.769 kr." í 7. mgr. kemur: 100.604 kr.
2. gr.
Í stað "42.662 kr." í 1. mgr. 15. gr. reglugerðarinnar kemur: 43.899 kr.
3. gr.
Í stað "95.441 kr." í 1. mgr. 21. gr. reglugerðarinnar kemur: 98.209 kr.
4. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 7. mgr. 13. gr., 3. mgr. 18. gr., 3. mgr. 19. gr. og 35. gr. laga nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2007.
Félagsmálaráðuneytinu, 8. desember 2006.
Magnús Stefánsson.
Sesselja Árnadóttir.