Prentað þann 7. apríl 2025
1099/2013
Reglugerð um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um almannatryggingar (réttindi úr lífeyrissjóðum og til barnabóta (IV)).
1. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1224/2012 frá 18. desember 2012 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 883/2004 um samræmingu almannatryggingakerfa og á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 987/2009 sem kveður á um framkvæmd reglugerðar (EB) nr. 883/2004, skal öðlast gildi hér á landi, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 81/2013 frá 3. maí 2013 um breytingu á VI. viðauka (félagslegt öryggi) og bókun 37 við EES-samninginn, sbr. einnig 3. gr. laga nr. 2/1993, um Evrópska efnahagssvæðið, með síðari breytingum, og bókun 1 við EES-samninginn.
Reglugerðin skal gilda með þeirri aðlögun sem fram kemur í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar.
2. gr.
Í reglugerð þessari er mælt fyrir um gildistöku reglugerðarinnar að því er varðar þau málefni sem talin er upp í 2. gr. reglugerðar nr. 443/2012 um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um almannatryggingar, réttindi úr lífeyrissjóðum og til barnabóta (I), og fjármála- og efnahagsráðuneytið fer með.
Í reglugerð nr. 1098/2013 er kveðið á um gildistöku reglugerðarinnar að því er varðar þau málefni sem talin eru upp í 2. gr. reglugerðar nr. 442/2012 um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um almannatryggingar og velferðarráðuneytið fer með.
3. gr.
Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 81/2013 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 61, frá 31. október 2013, bls. 48. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1224/2013 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 28, frá 16. maí 2013, bls. 369.
4. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 56. gr. laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, og A-lið 68. gr. og 121. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 29. nóvember 2013.
F. h. r.
Hafdís Ólafsdóttir.
Haraldur Steinþórsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.