Prentað þann 7. apríl 2025
1082/2020
Reglugerð um breytingu á reglugerð um rafrænar þinglýsingar, nr. 360/2019.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. reglugerðarinnar:
- Á eftir orðunum "þinglýsingu" í 1. málsl. kemur: og aflýsingu.
- Á eftir orðunum "rafrænna þinglýsinga" í 2. málsl. kemur: og aflýsinga.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. reglugerðarinnar:
- 3. tölul. orðast svo:
Þinglýsingagátt: Vefgátt sem tengir tölvukerfi þinglýsingarbeiðanda við þinglýsingarkerfi sýslumanna og gerir beiðanda kleift að auðkenna sig og senda rafræna færslu til þinglýsingar eða aflýsingar. -
Við bætist nýr töluliður svohljóðandi:
- Aflýsing með rafrænni færslu: Aðgerð við að afmá eignarhaft af eign, án þess að þinglýsingarstjóra berist frumrit skjalsins með áritun um aflýsingu þess.
3. gr.
3. gr. reglugerðarinnar orðast svo, ásamt fyrirsögn:
Umsókn um aðgengi að vefþjónustum.
Þjóðskrá Íslands tekur við umsóknum þinglýsingarbeiðenda um aðgang að vefþjónustum þinglýsingagáttar. Með umsókninni skal fylgja samþykki þinglýsingarbeiðanda á þeim skilmálum sem gilda fyrir tengingu tölvukerfa við þinglýsingagáttina. Í skilmálunum skal eftir atvikum fjallað um réttindi og skyldur þinglýsingarbeiðanda, þjónustuveitanda (Þjóðskrár Íslands) og sýslumanna, tæknilýsingar, áhrif vanefnda á greiðslum og önnur nauðsynleg atriði. Skilmálarnir sem og breytingar á þeim skulu staðfestir af dómsmálaráðuneytinu.
4. gr.
Á eftir 8. gr. reglugerðarinnar kemur ný grein, 8. gr. a, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:
Framkvæmd aflýsingar með rafrænni færslu.
Sá sem beiðist aflýsingar tengist þinglýsingagátt með rafrænni auðkenningu. Meginatriði skjals eru sótt í þinglýsingagátt með uppflettingu á þinglýsingarnúmeri þess. Þegar staðreynt hefur verið að meginatriðin varði skjalið sem ætlunin er að aflýsa, sendir rétthafi skv. skjalinu skeyti með beiðni um aflýsingu í gegnum þinglýsingagáttina. Ekkert gjald er greitt fyrir beiðni um aflýsingu með rafrænni færslu.
Þegar rafræn beiðni um aflýsingu hefur verið send í þinglýsingagáttina er hún tímastimpluð til staðfestingar á viðtökudegi og -tíma, úthlutað einkvæmu númeri og yfirfarin til að staðreyna að skilyrði til aflýsingar séu uppfyllt. Séu skilyrði uppfyllt er skjalinu aflýst í þinglýsingabók. Fulnægi beiðnin ekki skilyrðum er hún endursend aflýsingarbeiðanda án frekari meðferðar.
Aflýsingarbeiðanda er sent svarskeyti til staðfestingar á meðferð beiðninnar.
5. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 5. mgr. 5. gr. þinglýsingalaga nr. 39/1978, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Dómsmálaráðuneytinu, 4. nóvember 2020.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.
Haukur Guðmundsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.