Menningar- og viðskiptaráðuneyti

1074/2024

Reglugerð um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1042 að því er varðar tækniforskriftir og verklagsreglur fyrir samtengingarkerfi skráa.

1. gr.

Eftirtalin framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til í lið 1a í XXII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 161/2022, frá 29. apríl 2022, um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XXII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samn­ingsins:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1042 frá 18. júní 2021 um reglur um beitingu tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/1132 að því er varðar tækniforskriftir og verklagsreglur fyrir samtengingarkerfi skráa og niðurfellingu framkvæmdar­reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2244.

 

2. gr.

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnar (ESB) 2021/1042 er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi ESB, nr. 76/2022, 17. nóvember 2022, bls. 252-296.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 2. mgr. 9. gr. b laga nr. 17/2003 um fyrirtækjaskrá, 2. mgr. 147. gr. a laga nr. 2/1995 um hlutafélög, 2. mgr. 121. gr. a laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög og 2. mgr. 109. gr. a laga nr. 3/2006 um ársreikninga og öðlast þegar gildi. Jafnframt falla úr gildi reglu­gerðir nr. 646/2024 og 841/2018.

 

Menningar- og viðskiptaráðuneytinu, 5. september 2024.

 

F. h. r.

Ingvi Már Pálsson.

Sigurbjörg Guðmundsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica