Prentað þann 7. apríl 2025
1040/2022
Reglugerð um gildistöku framseldrar reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2244 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625 með sértækum reglum um opinbert eftirlit að því er varðar aðferðir við sýnatöku vegna varnarefnaleifa í matvælum og fóðri.
1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum, sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinnar ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2244 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625 með sértækum reglum um opinbert eftirlit að því er varðar aðferðir við sýnatöku vegna varnarefnaleifa í matvælum og fóðri. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 204/2022 frá 8. júlí 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 53, frá 11. ágúst 2022, bls. 34.
2. gr.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 93/1995 um matvæli, lög nr. 54/1990 um innflutning dýra og lög nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.
3. gr.
Brot gegn reglugerð þessari varðar sektum eða fangelsi. Um þvingunarúrræði og viðurlög vísast til laga nr. 93/1995 um matvæli, laga nr. 54/1990 um innflutning dýra og laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 31. gr. a. laga nr. 93/1995 um matvæli og 7. gr. laga nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 25. ágúst 2022.
Svandís Svavarsdóttir.
Emilía Madeleine Heenen.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.