Prentað þann 14. apríl 2025
1020/2012
Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 372/2007 þar sem mælt er fyrir um bráðabirgðaflæðimörk fyrir mýkiefni í þéttingum í lokum sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli.
1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirfarandi EB-gerðir gildi hér á landi:
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 372/2007 þar sem mælt er fyrir um bráðabirgðaflæðimörk fyrir mýkiefni í þéttingum í lokum sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 5/2008, frá 2. febrúar 2012.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 597/2008 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 372/2007 þar sem mælt er fyrir um bráðabirgðaflæðimörk fyrir mýkiefni í þéttingum í lokum sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 27/2009, frá 18. mars 2009.
2. gr.
Reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar nr. 372/2007 og 597/2008 eru birtar sem fylgiskjöl við reglugerð þessa.
3. gr.
Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar vegna matvælaeftirlits sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995, um matvæli.
4. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.
5. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli.
6. gr.
Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 14. nóvember 2012.
F. h. r.
Sigurgeir Þorgeirsson.
Eggert Ólafsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.