Prentað þann 7. apríl 2025
1007/2009
Reglugerð um breyting á reglugerð um skipan og störf starfsgreinaráða nr. 711/2009.
1. gr.
Á eftir staflið g í 3. gr. kemur nýr stafliður, svohljóðandi: sjávarútvegs- og siglingagreinum.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr.
- Í stað orðanna "einn tilnefndur" á undan "af Samtökum atvinnulífsins" í 7. mgr. kemur: tveir tilnefndir.
- Orðin "tilnefndur af Félagi skipstjórnarmanna" í 7. mgr. falla brott.
- Á eftir 7. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Í starfsgreinaráði sjávarútvegs- og siglingagreina eiga sæti sjö fulltrúar, tveir tilnefndir af Alþýðusambandi Íslands, einn tilnefndur af Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands og þrír tilnefndir af Samtökum atvinnulífsins. Einn fulltrúi er tilnefndur sameiginlega af Félagi íslenskra framhaldsskóla og Kennarasambandi Íslands.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 25. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008 og öðlast þegar gildi.
Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 16. desember 2009.
Katrín Jakobsdóttir.
Ásta Magnúsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.