1. gr.
Eftirfarandi breyting er gerð á 3. gr.:
Nýr 5. tl. orðast svo:
Innihaldsefni merkir hráefni, aukefni, ensím og önnur efni sem notuð eru við framleiðslu matvæla og finnast í lokaafurð, jafnvel þó að í breyttri mynd sé. Ef innihaldsefni matvæla er sjálft afurð úr nokkrum innihaldsefnum skulu þau talin innihaldsefni matvælanna sem um er að ræða.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar eru gerðar á 10. gr.:
3. gr.
Eftirfarandi breyting er gerð á 11. gr.:
Við 2. mgr. bætist nýr liður d sem orðast svo: d) skulu ensím, önnur en þau sem um getur í b-lið 10. gr., táknuð eftir heiti einhvers þeirra flokka innihaldsefna sem skráðir eru í viðauka 2 ásamt sérheiti þeirra.
4. gr.
Eftirfarandi breytingar eru gerðar á viðauka 2 um flokksheiti aukefna og merkingu á bragðefnum:
Á eftir lista yfir flokksheiti aukefna fellur brott texti um merkingar á bragðefnum í þremur töluliðum og þess í stað kemur svohljóðandi texti:
MERKING Á BRAGÐEFNUM Í INNIHALDSLÝSINGU
1. |
Með fyrirvara um 2. mgr. skulu bragðefni tilgreind með hugtökunum |
|
- |
"bragðefni" eða sértækara heiti eða lýsing á bragðefninu ef bragðefnisþátturinn inniheldur bragðefni eins og þau eru skilgreind í b-, c-, d-, e-, f-, g- og h-lið 2. mgr. 3. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1334/2008 frá 16. desember 2008 um bragðefni og tiltekin innihaldsefni matvæla sem hafa bragðgefandi eiginleika til notkunar í og á matvæli (*), |
|
- |
"reykbragðefni" eða "reykbragðefni framleidd úr matvælum eða matvælaflokki/-flokkum eða grunnefni/-efnum" (t.d. reykbragðefni framleidd úr beyki) ef bragðefnisþátturinn inniheldur bragðefni eins og þau eru skilgreind í f-lið 2. mgr. 3. gr. reglugerðar (EB) nr. 1334/2008 og gefur matvælunum reykt bragð. |
|
2. |
Nota skal orðið "náttúrulegt" til að lýsa bragðefnum í samræmi við 16. gr. reglugerðar nr. 1334/2008. |
5. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í lögum um matvæli, nr. 93/1995, með síðari breytingum og til innleiðingar á 21. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1332/2008 um ensím í matvælum og um breytingu á tilskipun ráðsins 83/417/EBE, reglugerð ráðsins (EB) nr. 1493/1999, tilskipun 2000/13/EB, tilskipun ráðsins 2001/112/EB og reglugerð (EB) nr. 258/97 og 29. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1334/2008 um bragðefni og tiltekin innihaldsefni matvæla sem hafa bragðefnagefandi eiginleika til notkunar í og á matvæli. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 18. október 2011.
Jón Bjarnason.
Baldur P. Erlingsson.