Prentað þann 6. apríl 2025
97/2016
Reglugerð um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Sómalíu nr. 792/2015.
1. gr. Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Sómalíu nr. 792/2015.
1.10 | Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2015/2053 frá 16. nóvember 2015 um framkvæmd ákvörðunar 2010/231/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Sómalíu, fylgiskjal 1.10. | |
2.7 | Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2015/2044 frá 16. nóvember 2015 um framkvæmd 13. gr. reglugerðar (ESB) nr. 356/2010 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er að tilteknum einstaklingum eða lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum í ljósi ástandsins í Sómalíu, fylgiskjal 2.7. |
2. gr. Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 22. janúar 2016.
Gunnar Bragi Sveinsson.
Stefán Haukur Jóhannesson.
Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.