I. KAFLI
Almenn ákvæði.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. reglugerðarinnar:
1. flokkur: | Skoteldar sem mjög lítil hætta stafar af, hávaðastig er óverulegt og sem eru ætlaðir til notkunar á lokuðum svæðum, þ.m.t. skoteldar sem eru ætlaðir til notkunar inni í íbúðarhúsum. |
2. flokkur: | Skoteldar sem lítil hætta stafar af, hávaðastig er lágt og sem ætlaðir eru til notkunar utanhúss á lokuðum svæðum, í húsagörðum eða öðrum minni svæðum. |
3. flokkur: | Skoteldar sem miðlungs hætta stafar af, sem eru ætlaðir til notkunar utandyra á stórum opnum svæðum og með hávaðastig sem er ekki skaðlegt heilbrigði manna samkvæmt skilgreindum fjarlægðarviðmiðum 8. gr. reglugerðarinnar og viðauka I. |
4. flokkur: | Skoteldar sem mikil hætta stafar af, sem ekki eru fullgerðir og/eða ekki eru ætlaðir til sölu til almennings og eru aðeins ætlaðir til notkunar af einstaklingum með sérfræðiþekkingu (almennt þekktir sem skoteldar til faglegra nota) og með hávaðastig sem ekki er skaðlegt heilbrigði manna samkvæmt skilgreindum fjarlægðarviðmiðum 8. gr. reglugerðarinnar og viðauka I. |
Flokkur T1: | Skoteldar til notkunar á sviði sem lítil hætta af stafar. |
Flokkur T2: | Skoteldar til notkunar á sviði þar sem notendur eru einstaklingar með sérfræðiþekkingu. |
Flokkur P1: | Skoteldavörur, aðrar en skoteldar fyrir leikhús, sem lítil hætta stafar af. |
Flokkur P2: | Skoteldavörur, aðrar en skoteldar fyrir leikhús, eingöngu til meðhöndlunar eða notkunar hjá einstaklingum með sérfræðiþekkingu. |
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. reglugerðarinnar:
3. gr.
9. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
Nú verður alvarlegt slys af völdum skotelda og skal þá bráðamóttaka sjúkrahúss þegar í stað tilkynna það til lögreglu og Neytendastofu. Skylt er að tilkynna Neytendastofu þegar vart verður gallaðra skotelda í umferð.
4. gr.
Í stað tölunnar "18" í 2. mgr. 13. gr. reglugerðarinnar kemur: 20.
5. gr.
Við 19. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein, sem verður 4. mgr. svohljóðandi:
Nú er framleiðandi staðsettur utan Evrópska efnahagssvæðisins og skal innflytjandi ábyrgjast að skoteldarnir uppfylli öryggiskröfur, m.a. um CE-samræmismerkingu skv. reglugerð þessari.
6. gr.
Í stað 22. gr. reglugerðarinnar kemur ný grein svohljóðandi:
Óheimilt er að markaðssetja eða hafa undir höndum skotelda sem ekki hafa hlotið gerðarviðurkenningu og bera CE-samræmismerki samkvæmt 22. gr. a. Viðurkenndir skoteldar skulu standast grunnkröfur þær sem tilgreindar eru í tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2007/23/EB frá 23. maí 2007.
Gerðarviðurkenning skal fara fram hjá tilkynntum aðila sem hefur rétt til að veita slíka viðurkenningu á grundvelli tilskipana, laga og reglugerðar sem um hana gilda innan Evrópska efnahagssvæðisins. Við viðurkenningu skal farið eftir þeirri aðferð sem tilgreind er í viðaukum tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2007/23/EB.
Skoteldar sem hlotið hafa viðurkenningu í öðru ríki til notkunar á Evrópska efnahagssvæðinu eru sjálfkrafa viðurkenndir til notkunar hér á landi. Skoteldar sem framleiddir eru eftir samræmdum Evrópskum staðli skulu ennfremur hljóta viðurkenningu, enda standist staðallinn grunnkröfur tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2007/23/EB.
Neytendastofa annast eftirlit með að skoteldar standist gæðakröfur og metur hvort merkingar á þeim séu fullnægjandi. Neytendastofa gefur jafnframt út leiðbeiningar um lágmarksmerkingar á skoteldum. Við matið skal Neytendastofa hafa hliðsjón af viðauka I og tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2007/23/EB.
Ef um er að ræða nýjar tegundir skotelda sem ekki hafa verið fluttar inn áður skulu þær sérstaklega tilgreindar á innflutningsskjölum.
Óheimilt er að flytja inn eða selja eldri skotelda en tveggja ára.
7. gr.
Á eftir 22. gr. reglugerðarinnar bætist við ný grein, 22. gr. a, svohljóðandi:
CE-samræmismerking.
Viðurkenndir skoteldar skulu bera CE-samræmismerkið, sbr. viðauka IV, tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2007/23/EB, sbr. ákvörðun 93/465/EBE. CE-merkingin skal fest á skoteld með sýnilegum, læsilegum og óafmáanlegum hætti. Sé það er ekki hægt skal festa CE-samræmismerkið á auðkenniplötu sem er fest á skoteldinn eða umbúðirnar um hann. Auðkenniplatan verður að vera þannig hönnuð að ekki sé unnt að nota hana aftur.
Óheimilt að festa á skotelda merkingar eða áletranir sem geta villt um fyrir þriðja aðila að því er varðar þýðingu CE-merkisins á skoteldavörum. Allar aðrar merkingar má festa á skoteldavörur að því tilskildu að þær dragi ekki úr sýnileika og læsileika CE-merkisins.
8. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 23. gr. reglugerðarinnar:
9. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 33. gr. reglugerðarinnar:
10. gr.
Í stað orðanna "fjórum árum" í 36. gr. reglugerðarinnar kemur: sex árum.
11. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á viðauka I við reglugerðina:
12. gr.
Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði, sem verður 37. gr., og breytist greinatala í samræmi við það:
Með reglugerð þessari eru innleiddar og öðlast gildi hér á landi eftirtaldar gerðir:
13. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 39. gr. vopnalaga nr. 16/1998, sbr. 6. gr. d laga nr. 77/2015, öðlast þegar gildi.
14. gr.
Ákvæði til bráðabirgða.
Framleiðendur og innflytjendur skulu hafa lagað sig að reglunum eigi síðar en 15. janúar 2017. Ákvæðið gildir ekki um skotelda sem framleiddir eru hér á landi.
Framkvæmdartilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/58/ESB kemur til framkvæmda frá og með 17. október 2016, sbr. 2. mgr. 4. gr. tilskipunarinnar.
Innanríkisráðuneytinu, 27 október 2015.
F. h. r.
Þórunn J. Hafstein.
Skúli Þór Gunnsteinsson.