1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í II. kafla, I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 3/2007 frá 28. apríl 2007 öðlast eftirfarandi EB-gerð gildi hér á landi:
Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2006/77/EB frá 29. september 2006 um breytingu á I. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2002/32/EB að því er varðar hámarksgildi fyrir lífræn klórsambönd í fóðri.
2. gr.
Ofangreind tilskipun framkvæmdastjórnarinnar er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.
3. gr.
Ákvæði 17.-26. töluliðar, B-hluta I. viðauka reglugerðar nr. 340/2001 breytast í samræmi við viðauka tilskipunar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2006/77/EB.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 24. september 2008.
F. h. r.
Sigurgeir Þorgeirsson.
Baldur P. Erlingsson.
Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)