1. gr.
Í stað viðauka A kemur nýr viðauki A sem er hluti tilskipunar framkvæmdastjórnarinnar 2011/75/ESB frá 2. september 2011 um breytingu á tilskipun ráðsins 96/98/EB um búnað um borð í skipum.
2. gr.
Innleiðing.
Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2011/75/ESB um breytingu á tilskipun ráðsins 96/98/EB um búnað um borð í skipum, sem vísað er til í XIII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 51/2012 frá 30. mars 2012 sem birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 43, 2. ágúst 2012, bls. 37 að því er varðar tilskipun 2011/75/ESB, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans.
Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2011/75/ESB birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 54, 27. september 2012, bls. 889.
3. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 4. mgr. 1. gr. laga nr. 47/2003 um eftirlit með skipum og öðlast þegar gildi.
Reglugerðin er sett til innleiðingar á tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2011/75/ESB frá 2. september 2011 og tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2010/68/ESB frá 22. október 2010 um breytingu á tilskipun ráðsins 96/98/EB um búnað um borð í skipum.
Innanríkisráðuneytinu, 23. október 2012.
Ögmundur Jónasson.
Ragnhildur Hjaltadóttir.