1. gr.
Við 3. mgr 20. gr. bætist nýr málsliður sem orðast svo:
Þó er blindu og fötluðu fólki heimilt að hafa með sér leiðsögu- eða hjálparhunda í lyfjabúðir.
2. gr.
44. gr. ásamt fyrirsögn orðast svo:
Veikindi starfsfólks.
Lyfsöluleyfishafi skal tryggja að í gæðakerfi lyfjabúðar séu til staðar ferlar sem fyrirbyggi að enginn starfi í lyfjabúð sem sé ekki hæfur til starfans vegna veikinda.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 49. gr. lyfjalaga nr. 93/1994 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Velferðarráðuneytinu, 18. september 2013.
Kristján Þór Júlíusson
heilbrigðisráðherra.
Margrét Björnsdóttir.