1. gr.
Í stað viðauka A kemur nýr viðauki A sem er hluti tilskipunar framkvæmdastjórnarinnar 2009/26/EB frá 6. apríl 2009 um breytingu á tilskipun ráðsins 96/98/EB.
2. gr.
Innleiðing.
Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2009/26/EB, sem kveður á um breytingu á tilskipun ráðsins 96/98/EB um búnað um borð í skipum, sem vísað er til í XIII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 68/2010 frá 11. júní 2010 sem birtist í EES-viðauka 49, 16. september 2010, bls. 19 að því er varðar tilskipun 2009/26/EB, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans.
Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2009/26/EB birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 56, 7. október 2010, bls. 242.
3. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt lögum um eftirlit með skipum nr. 47/2003, öðlast þegar gildi. Reglugerðin er sett til innleiðingar á tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2009/26/EB frá 6. apríl 2009 um breytingu á tilskipun ráðsins 96/98/EB um búnað um borð í skipum.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 21. október 2010.
Ögmundur Jónasson.
Ragnhildur Hjaltadóttir.