1. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 77/2005 frá 13. janúar 2005 um breytingu á reglugerð ráðsins (EBE) nr. 574/72 sem kveður á um framkvæmd reglugerðar (EBE) nr. 1408/71 um beitingu almannatryggingareglna gagnvart launþegum, sjálfstætt starfandi einstaklingum og aðstandendum þeirra sem flytjast á milli aðildarríkja, skal gilda á Íslandi, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 117/2005 frá 30. september 2005 um breytingu á VI. viðauka (Félagslegt öryggi) við EES-samninginn. Reglugerðin skal gilda á Íslandi með þeirri aðlögun sem fram kemur í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar.
Reglugerðin (EB) nr. 77/2005 fjallar að hluta til um atvinnuleysistryggingar, greiðslur í fæðingarorlofi, barnabætur og réttindi úr lífeyrissjóðum. Í reglugerð frá félagsmálaráðuneytinu er mælt fyrir um gildistöku þess hluta sem fjallar um atvinnuleysistryggingar og greiðslur í fæðingarorlofi samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldraorlof. Í reglugerð fjármálaráðuneytisins er mælt fyrir um gildistöku þess hluta sem fjallar um barnabætur og réttindi úr lífeyrissjóðum.
2. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 77/2005 og ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 117/2005 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 66, 22. desember 2005, bls. 11, er birt sem fylgiskjal með reglugerð þessari.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 70. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingu, öðlast þegar gildi.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 20. ágúst 2007.
Guðlaugur Þór Þórðarson.
Davíð Á. Gunnarsson.
Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)