Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 410/2002 frá 27. febrúar 2002 um breytingu á reglugerð ráðsins (EBE) nr. 574/72 sem kveður á um framkvæmd reglugerðar (EBE) nr. 1408/71 um beitingu almannatryggingareglna gagnvart launþegum, sjálfstætt starfandi einstaklingum og aðstandendum þeirra sem flytjast milli aðildarríkja skal gilda á Íslandi, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 46/2003 frá 16. maí 2003 um breytingu á VI. viðauka (Félagslegt öryggi) við EES-samninginn. Reglugerðin skal gilda á Íslandi með þeirri aðlögun sem fram kemur í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar.
Reglugerðin (EB) nr. 410/2002 fjallar að hluta til um atvinnuleysistryggingar, greiðslur í fæðingarorlofi, barnabætur og réttindi úr lífeyrissjóðum. Í reglugerð frá félagsmálaráðuneytinu er mælt fyrir um gildistöku þess hluta sem fjallar um atvinnuleysistryggingar og greiðslur úr fæðingarorlofi samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldraorlof. Í reglugerð fjármálaráðuneytisins er mælt fyrir um gildistöku þess hluta sem fjallar um barnabætur og réttindi úr lífeyrissjóðum.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 410/2002 og ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 46/2003, sbr. 1. gr., sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnatíðindi EB, nr. 39, 31. júlí 2003, bls. 11, er birt sem fylgiskjal með reglugerð þessari.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 66. gr. laga nr. 117/1993 um almannatryggingar, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.