Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti

749/2024

Reglugerð um (7.) breytingu á reglugerð nr. 606/2021 um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.

1. gr.

Einn stafliður bætist við 33. gr. a. reglugerðarinnar, svohljóðandi:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2917 frá 20. október 2023 um sannprófunarstörf, faggildingu sannprófenda og samþykki stjórnsýsluyfirvalda fyrir vökt­unar­áætlunum samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/757 um vöktun, skýrslugjöf og sannprófun á losun gróðurhúsalofttegunda frá sjóflutningum og um niður­fellingu á framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2072 sem vísað er til í lið 21awa í XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 77/2024 frá 15. mars 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 39 frá 8. maí 2024, bls. 157-204.

 

2. gr.

Innleiðing.

Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á eftirtalinni gerð:

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2917 frá 20. október 2023 um sannpróf­unarstörf, faggildingu sannprófenda og samþykki stjórnsýsluyfirvalda fyrir vöktunar­áætlunum samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/757 um vöktun, skýrslugjöf og sannprófun á losun gróðurhúsalofttegunda frá sjóflutningum og um niðurfellingu á framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2072.

 

3. gr.

Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 4. mgr. 11. gr. laga nr. 96/2023 um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og öðlast gildi við birtingu.

 

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 11. júní 2024.

 

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Stefán Guðmundsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica