Menningar- og viðskiptaráðuneyti

732/2024

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 162/2006 um gjaldtöku fyrirtækjaskrár, hlutafélagaskrár, samvinnufélagaskrár og almannaheillafélagaskrár.

1. gr.

Heiti reglugerðarinnar breytist og verður svohljóðandi:

Reglugerð um gjaldtöku fyrirtækjaskrár, hlutafélagaskrár, samvinnufélagaskrár, sjálfseignar­stofnanaskrár, almannaheilla­félagaskrár, firmaskrár o.fl.

 

2. gr.

Heiti I. kafla reglugerðarinnar breytist og verður svohljóðandi:

Gjaldtaka fyrirtækjaskrár, hlutafélagaskrár, samvinnufélagaskrár, sjálfseignarstofnana­skrár, almannaheillafélagaskrár, firmaskrár o.fl.

 

3. gr.

1. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Ríkisskattstjóri skal taka gjald fyrir útgáfu kennitölu, skráningu í fyrirtækjaskrá, hlutafélaga­skrá, samvinnufélagaskrá, sjálfseignarstofnanaskrá, almannaheillafélagaskrá, firmaskrá o.fl. og fyrir afhend­ingu vottorða, upplýsinga og gagna úr skránum eftir því sem nánar er kveðið á um í þessum kafla.

Engin gjaldtaka skal þó vera fyrir aðgang að upplýsingum skv. 4. gr.

 

4. gr.

2. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Gjald fyrir útgáfu kennitölu og skráningu í fyrirtækjaskrá kr. 5.000    
Gjald fyrir afhendingu gagna á pappír er sem hér segir:    
1. Endurrit eða ljósrit af samþykktum, stofnsamningum, kr. 1.500    
  stofnfundargerðum, aukatilkynningum eða öðrum gögnum    
2. Vottorð um einstök hlutafélög, einkahlutafélög, samvinnufélög o.fl. skv. tölvuskráðum upplýsingum kr. 1.500    
3. Sérútbúið vottorð kr. 3.000    
Gjald fyrir afhendingu gagna í vefverslun á upplýsingasíðu Skattsins er sem hér segir:
1. Rafrænt innsigluð endurrit eða ljósrit af samþykktum, kr. 1.000    
  stofnsamningum, stofnfundargerðum, aukatilkynningum    
  eða öðrum gögnum    
2. Rafrænt innsigluð vottorð um einstök hlutafélög, einkahlutafélög kr. 1.000    
  samvinnufélög o.fl. skv. tölvuskráðum upplýsingum    

 

5. gr.

4. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Eftirfarandi upplýsingar skulu koma fram við uppflettingu á vef Skattsins, vefþjónustu eða sambæri­legu vefviðmóti, eftir því sem við á um viðkomandi félagaform:

  1. heiti félags og útibú tilgreind ef við á,
  2. erlent aukheiti,
  3. rekstrarform,
  4. kennitala,
  5. heimilisfang,
  6. póstfang,
  7. stofndagur og/eða skráningardagur,
  8. nöfn, kennitölur og lögheimili stjórnar- og varastjórnarmanna,
  9. nöfn, kennitölur og lögheimili félagsmanna sameignar- og samlagsfélaga,
  10. nöfn, kennitölur og lögheimili útibússtjóra,
  11. nöfn, kennitölur og lögheimili framkvæmdastjóra,
  12. nöfn, kennitölur og lögheimili prókúruhafa,
  13. hverjir riti firmað,
  14. nöfn, kennitölur og lögheimili endurskoðenda eða skoðunarmanna,
  15. atvinnugreinaflokkun,
  16. slit félags,
  17. hlutafé eða stofnfé,
  18. hvort lausnarskylda sé á hlutum eða hömlur á meðferð hlutabréfa ef við á,
  19. dagsetning samþykkta eða félagssamnings,
  20. tilgangur félags,
  21. reikningsár,
  22. fjárhæð hluta og atkvæðisréttur hluthafa,
  23. hvort nokkrum hlutum í félaginu skuli fylgja sérstök réttindi,
  24. hverjar þær upplýsingar sem fyrirtækjaskrá telur nauðsynlegt eða hagkvæmt að birta vegna hagsmuna opinberra aðila eða miðlunar upplýsinga til opinberra aðila, fyrirtækja og almennings.

 

6. gr.

6. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Ríkisskattstjóra er heimilt að gera samning um tengingu við vefgátt eða sambærilegt viðmót vegna aðgangs að upplýsingum skv. 4. gr. til eigin nota viðsemjanda á grundvelli notkunar hans. Upp­fletting skal vera gjaldfrjáls, sbr. 2. mgr. 1. gr.

 

7. gr.

7. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Með samningi við ríkisskattstjóra getur fyrirtæki eða stofnun fengið rafrænan aðgang að gagna­grunni fyrirtækjaskrár, hlutafélagaskrár, samvinnufélagaskrár, sjálfseignarstofnanaskrár, almanna­heilla­félagaskrár og firmaskrár og heimild til miðlunar tiltekinna upplýsinga úr skránum til annarra. Gjaldtaka fyrir slíka heimild skal vera:

1. Stofngjald/tengigjald kr. 195.900    
2. Mánaðarlegt þjónustugjald kr. 9.900    
3. Fyrir sérhvert vefkall þar sem sóttar eru samþykktir, kr. 1.000    
  stofnsamningar, stofnfundargerðir, aukatilkynningar    
  eða önnur gögn    
4. Uppfletting upplýsinga skv. 4. gr. kr. 0    

 

8. gr.

8. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Um gjaldtöku fyrir skráningu félaga, sjóða og stofnana, og skráningu breytinga fer að öðru leyti eftir lögum nr. 88/1991, um aukatekjur ríkissjóðs.

 

9. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 3. mgr. 6. gr. og 3. mgr. 8. gr. laga nr. 17/2003, um fyrirtækjaskrá, 2. mgr. 147. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995, 2. mgr. 121. gr. laga um einka­hlutafélög, nr. 138/1994, 2. mgr. 10. gr. laga um samvinnufélög nr. 22/1991, 7. mgr. 45. gr. laga um sameignarfélög nr. 50/2007, 2. mgr. 37. gr. laga um sjálfseignarstofnanir sem stunda atvinnu­rekstur nr. 33/1999, 20. gr. laga um skráningarskyldu félaga til almannaheilla með starf­semi yfir landamæri nr. 119/2019, og 33. gr. laga um félög til almannaheilla nr. 110/2021, og öðlast gildi 1. júlí 2024.

 

Menningar- og viðskiptaráðuneytinu, 7. júní 2024.

 

F. h. r.

Ingvi Már Pálsson.

Sigurbjörg Guðmundsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica