Heilbrigðisráðuneyti

688/2024

Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur erfðaráðgjafa og skilyrði til að hljóta starfsleyfi.

I. KAFLI

1. gr.

Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um menntun, réttindi og skyldur erfðaráðgjafa og skilyrði til að hljóta starfs­leyfi sem erfðaráðgjafi.

 

II. KAFLI

Starfsleyfi.

2. gr.

Starfsheiti.

Rétt til að kalla sig erfðaráðgjafa og starfa sem slíkur hér á landi hefur sá einn sem fengið hefur til þess leyfi landlæknis.

 

3. gr.

Skilyrði fyrir veitingu starfsleyfis.

Leyfi skv. 2. gr. má veita þeim sem lokið hafa að minnsta kosti tveggja ára MS-prófi í erfðaráðgjöf frá háskóla sem viðurkenndur er heilbrigðisyfirvöldum í því ríki og af samtökunum American Society of Human Genetics eða European Society of Human Genetics. Við mat á náminu ber að líta til námsviðmiða European Board of Medical Genetics fyrir nám í erfðaráðgjöf.

Um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi erfðaráðgjafa sem uppfyllir skilyrði tilskipunar Evrópu­þingsins og ráðsins 2005/36/EB, um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi, fer sam­kvæmt reglugerð, nr. 510/2020, um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi heilbrigðis­starfsmanna frá öðrum EES-ríkjum eða Sviss til að starfa hér á landi.

Þá er heimilt að veita starfsleyfi þeim sem lokið hafa sambærilegu prófi frá menntastofnun í ríki utan EES eða Sviss sem viðurkennd er sem slík af heilbrigðisyfirvöldum hér á landi og heilbrigðis­yfirvöldum þess ríkis þar sem námið var stundað. Um umsóknir ríkisborgara ríkja sem íslenska ríkið hefur ekki samið við um viðurkenningu á menntun og hæfi til að starfa sem heilbrigðis­starfsmaður hér á landi gilda sérstakar reglur í reglugerð nr. 483/2023 um meðferð umsókna um starfsleyfi og sérfræðileyfi skv. lögum um heilbrigðisstarfsmenn nr. 34/2012 frá umsækjendum frá ríkjum sem íslenska ríkið hefur ekki samið við um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi.

Um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi erfðaráðgjafa frá sameinaða konungsríkinu Stóra-Bretlandi og Norður-Írlandi fer samkvæmt 12. kafla fríverslunarsamnings konungsríkisins við EFTA-ríkin innan EES.

Veita má starfsleyfi á grundvelli náms sem fellur ekki undir 1. mgr. ef námið er talið uppfylla sambærilegar kröfur um innihald og fræðilega þekkingu og nám samkvæmt því ákvæði.

Umsókn um starfsleyfi skal senda embætti landlæknis.

Um gjaldtöku fyrir veitingu starfsleyfis fer skv. 9. gr.

 

4. gr.

Umsagnir.

Embætti landlæknis er heimilt að leita umsagnar um það hvort umsækjandi uppfylli skilyrði 3. gr. fyrir veitingu starfsleyfis, t.a.m. hvort nám í erfðaráðgjöf sem fellur ekki undir 1. mgr. 3. gr. teljist sambærilegt því námi sem ákvæðið tekur til.

 

III. KAFLI

Réttindi og skyldur.

5. gr.

Faglegar kröfur og ábyrgð.

Erfðaráðgjafi skal sýna sjúklingi virðingu og sinna störfum sínum af árvekni og trúmennsku og í samræmi við þær faglegu kröfur sem gerðar eru til stéttarinnar á hverjum tíma.

Erfðaráðgjafa ber að þekkja skyldur sínar og virða siðareglur stéttarinnar, viðhalda þekkingu sinni og faglegri færni og tileinka sér nýjungar er varða starfið.

Erfðaráðgjafi skal þekkja lög og reglugerðir sem gilda um heilbrigðisstarfsmenn og heilbrigðis­þjónustu og önnur lög og stjórnvaldsfyrirmæli eftir því sem við á.

Erfðaráðgjafi ber ábyrgð á störfum sínum og þeim rannsóknum sem hann framkvæmir.

Erfðaráðgjafi skal virða faglegar takmarkanir sínar og leita eftir aðstoð eða vísa sjúklingi til annars heilbrigðisstarfsmanns eftir því sem nauðsynlegt er, svo sem ef hann telur sig ekki geta veitt honum viðeigandi heilbrigðisþjónustu.

 

6. gr.

Upplýsingaskylda og færsla sjúkraskrár.

Um upplýsingaskyldu erfðaráðgjafa gagnvart sjúklingi fer samkvæmt ákvæðum laga um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997.

Um skyldu erfðaráðgjafa til að veita landlækni upplýsingar, meðal annars vegna eftirlits og til gerðar heilbrigðisskýrslna, fer samkvæmt lögum um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007.

Erfðaráðgjafi skal færa sjúkraskrá samkvæmt ákvæðum laga um sjúkraskrár, nr. 55/2009, og reglugerðum sem settar eru samkvæmt þeim.

 

7. gr.

Aðstoðarmenn og nemar.

Erfðaráðgjafi ber ábyrgð á því að aðstoðarmenn og nemar, sem starfa undir hans stjórn, hafi næga hæfni og þekkingu og fái nauðsynlegar leiðbeiningar og tilsögn til að inna af hendi störf sem hann felur þeim.

 

8. gr.

Trúnaður og þagnarskylda.

Erfðaráðgjafi skal gæta fyllstu þagmælsku um allt það sem hann kemst að í starfi sínu um heilsufar sjúklings, ástand, sjúkdómsgreiningu, horfur og meðferð ásamt öðrum persónulegum upplýsingum. Þetta gildir ekki bjóði lög annað eða rökstudd ástæða er til þess að rjúfa þagnarskyldu vegna brýnnar nauðsynjar.

Samþykki sjúklings eða forsjáraðila, ef við á, leysir erfðaráðgjafa undan þagnarskyldu.

Þagnarskylda samkvæmt þessari grein nær ekki til atvika sem erfðaráðgjafa ber að tilkynna um samkvæmt öðrum lagaákvæðum. Í þeim tilvikum ber erfðaráðgjafa skylda til að koma upplýsingum um atvik á framfæri við þar til bær yfirvöld.

Um trúnaðar- og þagnarskyldu erfðaráðgjafa gilda jafnframt ákvæði laga um réttindi sjúklinga, ákvæði laga um sjúkraskrár og önnur lög eftir því sem við á.

 

IV. KAFLI

Ýmis ákvæði.

9. gr.

Gjaldtaka.

Um gjaldtöku vegna útgáfu starfsleyfis fer skv. 10. gr. laga um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88/1991.

Um gjaldtöku vegna hvers konar umsýslu landlæknis vegna umsókna um starfsleyfi til viðbótar gjaldi skv. 1. mgr. og vegna prófa í faglegri þekkingu og færni fer samkvæmt reglugerð um gjaldtöku vegna umsókna um starfsleyfi og sérfræðileyfi heilbrigðisstarfsmanna, nr. 951/2012.

 

10. gr.

Almenn ákvæði.

Ákvæði laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012, laga um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007, laga um sjúkraskrár, nr. 55/2009, laga um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, laga um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997, svo og önnur lög og stjórnvaldsfyrirmæli gilda að öðru leyti um erfða­ráðgjafa.

 

11. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 2. mgr. 3. gr. laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012, öðlast þegar gildi.

 

Heilbrigðisráðuneytinu, 27. maí 2024.

 

Willum Þór Þórsson.

Ásta Valdimarsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica