1. gr.
Þar sem takmarkaðar innfjarðarækjuveiðar voru stundaðar í Ísafjarðardjúpi og Arnarfirði og engar innfjarðarækjuveiðar voru stundaðar á Húnaflóa, Skagafirði, Skjálfanda, Öxarfirði og norðurfjörðum Breiðafjarðar á fiskveiðiárinu 2018/2019, og á Eldeyjarsvæði almanaksárið 2018, skal á fiskveiðiárinu 2019/2020 úthluta aflamarki sem nemur samtals 893 þorskígildislestum til báta, sem hafa hlutdeild í innfjarðarækju á áðurgreindum svæðum.
Við útreikning uppbóta er miðað við að skerðingin verði ekki meiri en 30% frá meðalafla rækjuvertíðanna 1996/1997 - 2005/2006 að frádregnum afla í innfjarðarrækju fiskveiðiársins 2018/2019 á viðkomandi svæði. Verðmætastuðullinn fyrir rækju er 0,52, miðað við þorskígildi og koma 152 þorskígildislestir í hlut báta frá Arnarfirði, 132 þorskígildislestir í hlut báta í Ísafjarðardjúpi, 148 þorskígildislestir í hlut báta við Húnaflóa, 153 þorskígildislestir í hlut báta við Skagafjörð, 70 þorskígildislestir í hlut báta á Skjálfanda, 201 þorskígildislest í hlut báta við Öxarfjörð, 23 þorskígildislestir í hlut báta á Eldeyjarsvæði og 14 þorskígildislestir í hlut báts í norðurfjörðum Breiðafjarðar.
2. gr.
Þar sem engar hörpudisksveiðar voru stundaðar í Arnarfirði, Húnaflóa, Breiðafirði og Hvalfirði á fiskveiðárinu 2018/2019 skal á fiskveiðiárinu 2019/2020 úthluta aflamarki sem samtals nemur 983 þorskígildislestum til báta, sem aflahlutdeild hafa í hörpudiski á áðurgreindum svæðum.
Við útreikning uppbóta er miðað við að skerðingin verði ekki meiri en 30% frá meðalafla áranna 1998 til 2007. Verðmætastuðullinn fyrir hörpudisk er 0,32, miðað við þorskígildi, og koma 7 þorskígildislestir í hlut báta frá Arnarfirði, 33 þorskígildislestir í hlut báta við Húnaflóa, 919 þorskígildislestir í hlut báta við Breiðafjörð og 24 þorskígildislestir í hlut báta við Hvalfjörð.
3. gr.
Úthluta skal uppbótum til einstakra báta á grundvelli þeirrar aflahlutdeildar sem þeir hafa í rækju og skel á viðkomandi svæði og miðast við aflahlutdeild eins og hún er 1. ágúst 2019. Uppbæturnar skulu skiptast á eftirgreindar tegundir: Þorsk, ýsu, ufsa, steinbít, gullkarfa, keilu og löngu samkvæmt eftirfarandi töflu:
Tegundir | Lestir upp úr sjó | Þorskígildislestir |
Þorskur | 1.519 | 1.276 |
Ýsa | 229 | 192 |
Ufsi | 453 | 209 |
Steinbítur | 47 | 25 |
Gullkarfi | 219 | 151 |
Keila | 16 | 6 |
Langa | 30 | 17 |
Samtals: | 2.513 | 1.876 |
4. gr
Reglugerð þessi er sett skv. 3. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, til að öðlast þegar gildi og koma til framkvæmda fyrir fiskveiðiárið 2019/2020.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 4. júlí 2019.
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Erna Jónsdóttir.