Matvælaráðuneyti

671/2024

Reglugerð um (9.) breytingu á reglugerð nr. 454/2022 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2235 frá 16. desember 2020 um reglur um beitingu reglugerða Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429 og (ESB) 2017/625 að því er varðar fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum, fyrirmyndir að opinberum vottorðum og fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum/opinberum vottorðum vegna komu inn í Sambandið og tilflutninga innan Sambandsins á sendingum af tilteknum flokkum dýra og vara og o

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 14. tl., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1333 frá 17. maí 2024 um breytingu og leiðréttingu á III. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/2235 að því er varðar fyrirmyndir að vottorðum vegna komu lifandi fisks, lifandi krabbadýra og afurða úr þessum dýrum og tiltekinna lagarafurða, sem eru ætluð til manneldis, inn í Sambandið.

 

2. gr.

Framkvæmdarreglugerð (ESB) 2024/1333 sem nefnd er í 1. gr. er birt á ensku í C-deild Stjórnar­tíðinda, sem fylgiskjal við auglýsingu nr. 20/2024.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 28. maí 2024.

 

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir.

Svava Pétursdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica