1. gr.
26. gr. breytist þannig:
Í stað 4. mgr. 26. gr. kemur ný málsgrein sem orðist svo:
Æfingaakstur í ökugerði eða með skrikvagni skal fara fram undir stjórn löggilts ökukennara og skal að jafnaði vera lokið áður en umsækjandi fær útgefið bráðabirgðaskírteini. Umferðarstofa leggur mat á hvort búseta ökunema leiði til þess að ekki verði með sanngirni krafist að æfingaakstur í ökugerði fari fram meðan á ökunámi fyrir verklegt ökupróf stendur. Verði undanþága veitt skal akstur í ökugerði fara fram á fyrstu þremur árum eftir að umsækjandi fær bráðabirgðaskírteini en þó áður en hann fær fullnaðarskírteini.
2. gr.
X. viðauki breytist þannig:
Í 4. mgr. 1. kafla, almennt, falla út orðin: "eða handhafa bráðabirgðaskírteinis".
3. gr.
Á eftir c-lið undir fyrirsögninni "ákvæði til bráðabirgða" kemur nýr liður, d-liður, sem orðist svo:
4. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt 50., 52. og 73. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 17. ágúst 2010.
Kristján L. Möller.
Ragnhildur Hjaltadóttir.