648/2001
Reglugerð um breytingu á reglugerð fyrir talnagetraunir Íslenskrar getspár, nr. 892 10. desember 1999. - Brottfallin
Stofnreglugerð:
Felld brott með:
1. gr.
5. gr. liður 5.5, 1. málsliður, orðist svo:
5.5. |
Til vinninga skal verja 45% af heildarsöluverði þátttökukvittana hverrar leikviku, þar með talið andvirði þátttökukvittana sem látnar eru þátttakendum í té sem kaupauki án endurgjalds. |
2. gr.
Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt heimild í lögum um talnagetraunir nr. 26 2. maí 1986 öðlast þegar gildi.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 30. ágúst 2001.
Sólveig Pétursdóttir.
Björn Friðfinnsson.