1. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 599/2004 frá 31. mars 2004 um að samþykkja samræmda fyrirmynd að vottorði og skoðunarskýrslu í tengslum við viðskipti innan Bandalagsins með dýr og afurðir úr dýraríkinu, sem vísað er til í 119. lið, undirkafla 1.2. í kafla 1 í I. viðauka við EES-samninginn, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 44/2005 frá 12. febrúar 2005 um breytingu á I. viðauka (heilbrigði dýra og plantna), skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka samningsins, bókun um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans.
2. gr.
Reglugerðin er birt sem fylgiskjal með reglugerð þessari.
3. gr.
Fiskistofa fer með framkvæmd eftirlits sem kveðið er á um í þessari reglugerð og afmarkast nánar af gildissviði laga nr. 55/1998 um meðferð, vinnslu og dreifingu sjávarafurða og laga nr. 33/2002 um eldi nytjastofna sjávar.
4. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 29. og 31. gr. laga nr. 55/1998 um meðferð, vinnslu og dreifingu sjávarafurða, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Sjávarútvegsráðuneytinu, 30. júní 2006.
F. h. r.
Jón B. Jónasson.
Guðríður Margrét Kristjánsdóttir.
Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)